Ring er nýtt vörumerki Símans á farsímamarkaðinum 23. nóvember 2009 15:39
Miðvikudaginn 25. nóvember verður Ring, nýju vörumerki Símans á farsímamarkaði, ýtt úr vör. Ring er ný þjónusta sérstaklega sniðin að þörfum ungs fólks sem gerir miklar kröfur um gæði og hagstætt verð. Fyrir 1.990 krónur á mánuði geta viðskiptavinir hringt og sent SMS innan kerfa Símans fyrir 0 krónur í alla viðskiptavini Símans, 160 þúsund talsins. Í tilkynningu segir að innifalin er 990 króna inneign í öll önnur kerfi. Öll þjónusta Ring fer fram hjá Símanum og viðskiptavinir hringja á GSM og 3G kerfum Símans. Þjónustuleiðir eru tvær: Fyrir 1.990 krónur á mánuði geta viðskiptavinir hringt og sent SMS innan allra kerfa Símans fyrir 0 krónur í alla viðskiptavini Símans, 160 þúsund talsins. Innifalið er 1500 mínútur/SMS innan kerfis og 990 króna inneign í öll önnur kerfi. Fyrir 990 krónur á mánuði geta viðskiptavinir Ring hringt og sent SMS fyrir 0 krónur í alla þá sem eru í Frelsi Símans, um 60 þúsund talsins. Innifalið er 1500 mínútur/SMS innan kerfis og 990 króna inneign í öll önnur kerfi. Þjónustan byggir á fyrirframgreiddum inneignum og fer öll áfylling rafrænt fram, ýmist í gegnum farsímann eða þjónustuvefsíðu Ring á www.ring.is, sem fer í loftið miðvikudaginn 25. nóvember. Viðskiptavinum Ring munu bjóðast farsímar á góðum kjörum og fylgir innifalin notkun með hverjum seldum farsíma. Auk þess hefur Ring gert samninga við skyndibitastaði, verslanir og kvikmyndahús um veglega afslætti fyrir viðskiptavini Ring. Á meðal samstarfsaðila eru Domino´s, Serrano, Smárabíó, Háskólabíó, Borgarbíó Akureyri, Regnboginn og NTC. „Fyrir Símann er það stórt og spennandi skref að bjóða nýtt vörumerki. Sérstaða Ring er að viðskiptavinirnir geta hringt á 0 kr. innankerfis í alla viðskiptavini Símans, 160 þúsund manns. Þannig kemur Ring til dæmis til móts við þarfir fjölskyldna sem sjá hag sinn í að unglingarnir og foreldrarnir séu innan sama kerfis. Sá sem skráir sig í Ring á því í raun hvorki meira né minna en 160 þúsund vini, sem er heildarfjöldi viðskiptavina Símans," segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans í tilkynningunni.
Mest lesið Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira