Uppboð: Verðmæti minkaskinna tvöfaldast milli ára 21. desember 2009 14:20
Verð á minkaskinnum hækkaði um 36% á uppboði hjá Kopenhagen Fur í Kaupmannahöfn í morgun. Þetta þýðir að framleiðsluverðmæti íslenskra minkabúa mun tvöfaldast milli ára en flest skinnin héðan eru seld hjá Kopenhagen Fur á apríl- og júníuppboðunum. Í frétt um málið í Jyllands Posten segir að hin mikla hækkun frá september og fram að desemberuppboðinu hafi einkum stafað af miklum áhuga kínverska kaupenda. Kínverjar voru 240 af 300 kaupendum á uppboðinu. Meðalverð fyrir skinn á uppboðinu nú reyndist um 7.000 kr. en hæstu verðin eða 10.500 kr, fengust fyrir stutt hvíthærð karlskinn. Björn Halldórsson formaður Sambands íslenskra loðdýraræktenda segir að hérlendis séu nú framleidd að jafnaði 160 til 180.000 minkaskinn. Miðað við meðalverðið nú er framleiðsluverðmæti íslenskra minkaskinna um 1,2 milljarður kr. Björn segir að framleiðlsuverðmætið á þessu ári liggi á bilinu 5-600 milljónir kr. Því má reikna með að verðmætið tvöfaldist á næsta ári ef fyrrgreint meðalverð heldur sem allar líkur eru á. Hin mikla hækkun nú kom mönnum á óvart því verð á skinnunum hefur verið hátt allt þetta ár. Raunar hækkuðu skinnin um 30% á uppboðinu í febrúar s.l. Björn segir að allar geymslur fyrir minkaskinn í Kína séu nú tómar. Það magn sem nú var selt, 1,4 milljónir skinna, muni koma á markaðinn í Kína fyrir mánaðarmótin janúar/febrúar á næsta ári en þá hefst nýárið í Kína.„Þá munu allar geymslurnar tæmast að nýju í tíma fyrir febrúaruppboðið," segir Björn. Þess má geta að Kopenhagen Fur heldur uppboð fimm sinnum á ári og taka Íslendingar einkum þátt í apríl og júníuppboðunum eins og fyrr greinir. Lítilsháttar magn af skinnum frá Íslandi var selt á uppboðinu nú. Hvað 36% hækkunina varðar segir Björn að hún ein og sér geti staðið undir öllum fóðurkostnaði minkabúanna á landinu. Og fóðurkostnaðurinn er stærsti rekstrarkostnaðurinn. „Við sem stundum minkarækt höfum því ástæðu til að vera bjartsýnir á framtíðina," segir Björn. Minkabændur á Íslandi sækja fjármögnun sína beint til Kopenhagen Fur. Þar fá þeir sín afurðalán gegn veði í dýrum og skinnum. Og vextirnir á afurðalánunum frá Kopenhagen Fur eru aðeins 4%. „Slíkt þætti gott hérlendis í dag," segir Björn.
Mest lesið Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Ráðin markaðsstjóri Prís Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Sjá meira