Greiðsluskjól Frjálsa fyrir einstaklinga með erlend lán 4. desember 2009 14:29 „
Frjálsi fjárfestingarbankinn er stoltur af að kynna viðskiptavinum sínum skuldbreytingarlausn sem tekur bæði á vanda vegna höfuðstóls erlendra lána og aukins greiðsluþunga eftir fall íslensku krónunnar," segir í tilkynningu frá bankanum um málið. Þar kemur fram að viðskiptavinum Frjálsa fjárfestingarbankans stendur til boða 26% lækkun höfuðstóls að meðaltali þegar láni er skuldbreytt í íslenskar krónur. Lækkunin tekur mið af myntsamsetningu og lengd lánasamnings.Við skuldbreytinguna verður lánið að íslensku verðtryggðu láni, 25 eða 40 ára, með föstum 3,95% vöxtum í þrjú ár og möguleika á lengingu um eitt ár fyrir skilvísa greiðendur. Eftir það verða fastir vextir lánsins 5,25%.Jafnframt standa viðskiptavinum til boða fastir óverðtryggðir 6,95% vextir í þrjú ár með lengingu í eitt ár fyrir skilvísa greiðendur. Þeir vextir breytast síðan í millibankavexti (REIBOR) + 1,50% en viðskiptavinum er einnig frjálst að skipta yfir í fasta verðtryggða 5,25% vexti.Með aðgerð þessari geta lántakendur í viðskiptum við Frjálsa fjárfestingarbankann lækkað greiðslubyrði sína af erlendum fasteignalánum um allt að 41% og um allt að 20% ef miðað er við greiðslubyrði eftir greiðslujöfnun erlends láns.„Úrræði Frjálsa fjárfestingabankans myndar greiðsluskjól til næstu ára og kemur til móts við þarfir heimila sem glíma við skerta greiðslugetu eða of háa skuldabyrði vegna erlendra lána. Úrræðið stendur viðskiptavinum til boða frá 14. desember næstkomandi og út febrúarmánuð árið 2010.Frjálsi fjárfestingarbankinn tekur auk þess þátt í úrræðum ríkisstjórnarinnar að því er varðar greiðslujöfnun og greiðsluaðlögun.," segir í tilkynningunni.Starfsemi Frjálsa fjárfestingarbankans felst aðallega í þjónustu við viðskiptavini, þótt ekki séu veitt ný lán, ásamt þjónustu við lánasöfn, innheimtustarfsemi, umsýslu leigufélaga og umsjón ýmissa byggingarverkefna. Starfsemi bankans varð 27 ára á þessu ári en hann hefur verið í eigu SPRON frá því í lok árs 2002.Við fall SPRON lokaðist fyrir stuðning móðurfélagsins við fjármögnun Frjálsa fjárfestingarbankans. Þegar fyrirséð var að greiðsluörðugleikar bankans liðu ekki hjá á skömmum tíma var óskað eftir slitum á honum í samræmi við lög um fjármálafyrirtæki. Í framhaldi af því var slitastjórn skipuð.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira