Fengu ofurlán til þess að rétta stöðu Icelandic Group 22. desember 2009 19:39
Landsbankinn lánaði hlutafélaginu IG ehf. 26 milljarða króna í formi kúluláns skömmu eftir bankahrun til þess að kaupa hluti í Icelandic Group. Veðin eru bréfin í félaginu sjálfu. Þetta kom fram í Kastljósi í kvöld. Þar kom fram að félagið ELL 187 var stofnað snemma í október 2008 af lögmannsstofunni Logos. Hlutafé í fyrirtækinu var hálf milljón en tvö útgerðarfyrirtæki, Brim og Hraðfrystistöð Gunnvarar á Ísafirði, keyptu svo félagið á fimm hundruð þúsund krónur og í byrjun nóvember varð ELL 187 að IG ehf. Í stjórn settust Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, Friðrik Jóhannsson þá- og núverandi stjórnarformaður Icelandic group og Einar Valur Kristjánsson. Guðmundur og Friðrik höfðu báðir setið í stjórn Icelandic group fyrir hrun. Í frétt Kastljóss sagði að samkvæmt ársreikningi IG keypti hið nýstofnaða félag 97,9% hlut í útflutningsfélaginu Icelandic Group stuttu eftir stofnun þess, rétt eftir hrun bankanna. Um leið var hlutafé fyrri eigenda fært niður á móti tapi félagsins. Hið nýstofnaða félag sem tók yfir fyrirtækið gerði þetta með hárri lántöku sem alls nam 26 milljörðum króna samkvæmt Kastljósi. Lánveitandinn var Landsbankinn, sem þá var kominn í eigu ríkisins. Þannig var skuldastaða Icelandic Group lagfærð en tugmilljarða skuldir fluttar yfir í félagið IG ehf. Samkvæmt ársreikningi er þetta kúlulán til þriggja ára og kemur því allt til greiðslu að loknum samningstímanum. Veðið fyrir láninu er svo í bréfunum sjálfum í Icelandic Group. Áhætta útgerðarfélaganna tveggja er því í raun og veru engin. Það var Landsbankinn sem leiddi þessar breytingar, en bankinn var þá kominn í hendur ríkisins eftir gjaldþrot hans. Þá sagði í Kastljósi að Friðrik og Guðmundur komu í stjórn fyrir hrun í umboði meirihlutaeigandans Grettis, félags í eigu Björgólfs Guðmundssonar. Finnbogi Baldvinsson er nú og hefur verið forstjóri fyrirtækisins frá því í febrúar 2008 en var áður yfir Evrópudeild þess. Landsbankinn átti stærstu hagsmunina í félaginu og lánuðu því félaginu 26 milljarða. Í yfirlýsingu sem lesin var upp í Kastljósinu kom fram að lánið var veitt til þess að tryggja íslenskt eignarhald á félaginu.
Mest lesið Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Sjá meira