Viðskipti innlent

Slitastjórn Kaupþings ræður PwC til rannsóknarvinnu

Gunnar Örn Jónsson skrifar
Slitastjórn Kaupþings hefur ráðið endurskoðunarfyrirtækið PricewaterhouseCoopers (PwC) til að sinna rannsókn á ráðstöfunum bankans áður en hann fór í greiðslustöðvun með sérstakri áherslu á mögulega riftun ráðstafana þrotamanns á grundvelli gjaldþrotaskiptalaga.

Síðastliðið haust réð skilanefnd Kaupþings að beiðni Fjármálaeftirlitsins (FME) endurskoðunarfyrirtækið PwC til að kanna hvort bankinn eða aðilar tengdir honum hefðu á síðustu vikunum fyrir fall bankans vikið frá innri reglum hans eða brotið gegn reglum um starfsemi fjármálafyrirtækja, lögum um verðbréfaviðskipti eða almennum hegningarlögum.

Ítarlegri úttekt var skilað til FME 30. desember 2008 og hefur sú úttekt þegar orðið grundvöllur frekari rannsókna. Jafnframt hafa embætti sérstaks saksóknara og rannsóknarnefnd Alþingis fengið aðgang að úttektinni. Auk fyrrnefndrar úttektar hefur mikið starf verið unnið af hálfu skilanefndar og starfsfólks hennar sem mun nýtast við undirbúning riftunarmála slitastjórnar.

Kaupþing hefur verið í greiðslustöðvun frá 24. nóvember 2008. Slitastjórn bankans var skipuð 25. maí síðastliðinn. Verkefni slitastjórnar er meðal annars að kanna alla löggerninga og ráðstafanir í rekstri bankans í samræmi við riftunarákvæði gjaldþrotaskiptalaga.



Viðamikil rannskókn sem nær allt að tvö ár aftur í tímann

Um er að ræða viðamikla rannsókn þar sem farið verður yfir bókhald bankans og löggerninga allt að tvö ár aftur í tímann en þess má geta að færslur í bókhaldi bankans voru margar milljónir á mánuði.

Helstu ráðstafanir sem koma til skoðunar eru: Lánveitingar, innlán,

afleiðuviðskipti, verðbréfaviðskipti, fjármagnshreyfingar milli fyrirtækja og landa, flóknir fjármálagerningar, starfsmannatengdar greiðslur og viðskipti.

Sérstaklega verða skoðuð viðskipti við nákomna aðila í skilningi gjaldþrotaskiptalaganna, stærstu hluthafa bankans, helstu stjórnendur, innherja og fleiri.

Reiknað er með því að fjöldi starfsmanna PwC komi að rannsókninni sem og starfsmenn slitastjórnar og skilanefndar. Sérfræðiteymi frá PwC á Bretlandi kemur að rannsókninni frá upphafi.

Ólafur Garðarson hrl. er aðstoðarmaður greiðslustöðvunar Kaupþings og á sæti í slitastjórn bankans:

„Við höldum áfram þeirri vinnu sem skilanefndin hóf í haust. Stefnan er að skoða allt ofan í kjölinn en við gerum okkur grein fyrir því að umfangið er mikið. Samt sem áður er ætlunin að fara fram með fyrstu riftunarmálin í haust. Jafnframt verður eftir atvikum málum vísað til sérstaks saksóknara eða lögregluyfirvalda."







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×