ILVA í Danmörku og Svíþjóð selt til IDdesign 4. febrúar 2009 09:38
Lagerinn, sem m.a. rekur verslanir Rúmfatalagersins á Íslandi, hefur gert samning um sölu á húsgagnaverslununum ILVA í Danmörku og Svíþjóð til danska félagsins IDdesign. Í tilkynningu um málið segir að samningurinn sé gerður með nokkrum fyrirvörum, meðal annars um samþykki samkeppnisyfirvalda í Danmörku. Ný stórverslun ILVA í Korputorgi fylgdi ekki með kaupunum og verður rekin áfram með óbreyttu sniði. ILVA og IDEmøbler munu áfram halda sínum sérkennum en hyggjast ná hagræðingu á öðrum sviðum m.a. í innkaupum og yfirstjórn. Velta ILVA á síðasta ári var um 700 milljónir danskra króna og gert er ráð fyrir að velta sameinaðs félags verði um 2 milljarðar danskra króna á þessu ári eða rúmlega 40 milljörðum kr. IDEmøbler og ILVA munu vera í sterkri stöðu til að mæta erfiðu árferði á danska húsgagnamarkaðinum á næstu misserum. Lagerinn mun eftir sem áður halda áfram rekstri ILVA á Íslandi og mun ásamt IDdesign jafnframt kanna möguleika á samstarfi og opnun verslana í ákveðnum löndum utan Evrópu. Markmið Lagersins með sölunni er að einfalda rekstur móðurfélagsins og einbeita sér að starfsemi Rúmfatalagersins, en fyrir utan íslensku verslanirnar rekur félagið m.a. 40 verslanir undir nafni JYSK í Kanada, 26 í Eystrasaltslöndunum, ásamt verslunum í Búlgaríu, Rúmeníu og Færeyjum.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira