Samræmd vísitala mælir 13,8% verðbólgu á Íslandi 17. nóvember 2009 10:44
Verðbólgan á Íslandi lækkaði úr 15,3% í 13,8% á milli september og október síðastliðinn samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs. Af ríkjum evrópska efnahagssvæðisins er verðbólgan, sem fyrr, langmest hér á landi.Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að verðbólgan mælist næst mest í Rúmeníu (4,3%), svo í Ungverjalandi (4,2%) og þar á eftir Póllandi (3,8%). Að meðaltali er verðbólgan nú um 0,5% meðal ríkja EES en innan evrusvæðisins, þar sem flest ríki eru nú að upplifa verðhjöðnun. Hefur samræmd vísitala lækkað að meðaltali um 0,1% á síðustu tólf mánuðum.Verðhjöðnun fer gjarnan saman við samdrátt og vaxandi atvinnuleysi líkt og verið hefur víða í Evrópu undanfarið. Mest er verðhjöðnunin á Írlandi, eða um 2,8%, en þar í landi hefur verið mikill samdráttur í landsframleiðslu, auk þess sem atvinnuleysi hefur farið hratt vaxandi. Það var Hagstofa Evrópusambandsins sem birti tölur um þetta í gær.Stærsti munur samræmdrar vísitölu neysluverðs og þeirrar vísitölu sem hér á landi er almennt notuð sem mælikvarði á verðbólgu, myndar viðmið verðbólgumarkmiðs Seðlabankans og Hagstofan reiknar er að íbúðaverð er ekki tekið beint inn í samræmdu vísitöluna.Íbúðaverð hefur lækkað nokkuð undanfarið og mælist verðbólgan því töluvert hærri samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs en hinni hefðbundnu. Samkvæmt þeirri síðarnefndu mældist verðbólgan í október 9,7% sem er um 4,1 prósentustigum lægri en samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs.
Mest lesið Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Sjá meira