Aflaverðmætið jókst um 12 milljarða milli ára 17. nóvember 2009 09:07
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 75 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins 2009, samanborið við rúma 63 milljarða yfir sama tímabil 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um 12 milljarða eða 19% á milli ára. Aflaverðmæti í ágústmánuði nam 10 milljörðum króna miðað við 9 milljarða í ágúst 2008.Þeta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að aflaverðmæti botnfisks var í lok ágúst orðið 52 milljarðar króna á árinu sem er aukning um 16,5% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 45 milljörðum.Verðmæti þorskafla var um 23 milljarðar og jókst um 9,5% frá árinu 2008. Aflaverðmæti ýsu nam um 10 milljörðum og stóð nokkurn veginn í stað milli ára. Verðmæti karfaaflans nam 6 milljörðum, sem er 34,7% aukning frá fyrstu átta mánuðum ársins 2008, og verðmæti ufsaaflans jókst um 5,1% milli ára í 4,2 milljarða króna. Verðmæti annars botnfisksafla jókst í heild um 31,9% miðað við fyrstu átta mánuði ársins 2008.Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 7 milljörðum króna í janúar til ágúst 2009 sem er 74,5% aukning frá fyrra ári. Verðmæti uppsjávarafla jókst um 11% milli ára og nam rúmum 15 milljörðum króna frá janúar til ágúst 2009. Munar þar mestu um verðmæti síldarafla sem nam 7,2 milljörðum samanborið við 4,7 milljarða í fyrra og makríl að verðmæti 4,2 milljarðar samanborið við 3 milljarða 2008.Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam um 29 milljörðum króna fyrstu átta mánuði ársins og jókst um 14% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 9,9% milli ára og nam 9,5 milljörðum króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 26 milljörðum, samanborið við tæpa 20 milljarða árið áður.Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam um 8,8 milljörðum, sem er 17,2% aukning miðað við tímabilið janúar til ágúst 2008.
Mest lesið Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Sjá meira