Byr verður trauðla bjargað 7. desember 2009 06:00
Ekki liggur enn fyrir hvort ríkið leggur sparisjóðunum til eiginfjárframlag líkt og þeim stendur til boða samkvæmt neyðarlögunum. Átta sparisjóðir af þeim tólf sem enn starfa í landinu óskuðu eftir framlaginu í vor. Það hljóðar upp á samtals tuttugu milljarða króna. Byr fengi helming en Sparisjóður Keflavíkur (SpKef) fjórðung. Kostnaður ríkisins við að bæta eiginfjárstöðu Byrs gæti orðið tæpir ellefu milljarðar króna og óvíst er hvort það dugi. Til viðmiðunar lagði ríkið samtals níu milljarða á endanum inn í Arion banka og Íslandsbanka. Þeir sem Fréttablaðið hefur rætt við, bæði innan fjármálaráðuneytisins og í bankageiranum, segja málið enn á borði fjármálaráðherra. Margir telja það stranda á endurskipulagningu Byrs og SpKef. Viðkvæmust sé staða Byrs, sem tók við greiðslumiðlun sparisjóðanna eftir fall Sparisjóðabankans í vor. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir málið á borði síns ráðuneytis að því leyti að það hafi heimild til að leggja sparisjóðunum til fjármagn sem svari til tuttugu prósenta af efnahagsreikningi þeirra á árinu 2007. „Ef það dugar þeim til fjárhagslegrar endurskipulagningar er það í boði en það er fyrst og fremst á hendi sparisjóðanna sjálfra að vinna úr sínum málum. Svo þurfa þeir auðvitað að fá samþykki Fjármálaeftirlits og eftir atvikum kröfuhafa og fleiri aðila til að áætlanirnar gangi upp," segir fjármálaráðherra, sem ekki vill tjá sig um núverandi stöðu málsins. Þá vill Steingrímur ekkert segja um meinta afstöðu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) en samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins meinar AGS stjórnvöldum að borga inn í sparisjóðina. Vísað er til samnings Byrs við kröfuhafa um að framlagið renni til þeirra. AGS er sagt mótfallið slíkri meðferð á skattfé. Breska ráðgjafarfyrirtækið Oliver Wyman veitir fjármálaráðuneytinu sérfræðiaðstoð um endurskipulagningu sparisjóðakerfisins. Fundað er reglulega í ráðuneytinu og dregur að lokum þess verks, að sögn Hjördísar Drafnar Vilhjálmsdóttur, ráðgjafa fjármálaráðherra. Niðurstaða kann að liggja fyrir um eða eftir áramót. Einn möguleiki er að nýta tækifærið og skera fjármálakerfi landsins meira niður með tiltölulega litlum tilkostnaði. Hagkvæmt er talið að láta banka eða fjármálafyrirtæki taka yfir eignir og skuldbindingar Byrs ásamt greiðslumiðlun. Rætt hefur verið við MP Banka og Saga Capital um þetta. Þannig sparar ríkið sér framlagið á sama tíma og sparisjóðakerfið helst í óbreyttri mynd á landsbyggðinni.- jab
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira