Viðskiptum með krónur á aflandsmarkaði fækkar 26. nóvember 2009 08:32
Frá nýliðnu sumri hefur þeim dögum fækkað sem ekki hefur verið lagt fram annað hvort kaup- eða sölutilboð. Breytingar á genginu hafa í kjölfarið orðið minni og sömuleiðis hefur verðbilið dregist saman.Hagfræðideild Lanmdsbankans fjallar um málið í Hagsjá sinni. Þar segir að eftir styrkingu krónunnar á aflandsmarkaði seint í vor dró umtalsvert úr þessum mun og hélst hann í kringum 30-40 kr. í sumar. Í lok september, við nokkra styrkingu krónunnar á aflandsmarkaði dró úr mismuninum, sem fór minnst niður í rúmar 8 kr., en nú hefur hann aftur aukist og stendur í rúmri 41 kr.Síðustu viðskipti með íslenskar krónur á aflandsmarkaði fóru fram á genginu 225, það er fyrir hverja evru voru greiddar 225 íslenskar krónur. Eins og áður hefur verið fjallað um í Hagsjá hélst gengi krónunnar fremur stöðugt í sumar, eða frá júní fram í miðjan september. Þá styrkist krónan umtalsvert og fór verð evru á aflandsmarkaði lægst niður í 190 krónur. Frá byrjun októbermánaðar hefur krónan veikst nokkuð.Viðskipti á aflandsmarkaði eru mjög rýr og oft og iðulega líða margir dagar milli viðskipta með evrur á móti krónum.Í Hagsjánni segir svo að gengismunur á milli hins opinbera gengis annars vegar og hins vegar aflandsgengis er einn af þeim þáttum sem peningastefnunefnd Seðlabankans fylgist náið með. Eftir því sem munurinn eykst, þeim mun meiri er ávinningurinn á að fara á svig við gjaldeyrishöft og þar með líkurnar á að slíkt sé gert.Þegar viðskipti fara fram á aflandsmarkaði skilar gjaldeyrir sér ekki til landsins og þar með er minni þrýstingur til styrkingar krónunnar, sem aftur heldur aftur af vaxtalækkunum Seðlabankans. Því má segja að slík viðskipti séu afar óhagstæð fyrir allan almenning og fyrirtæki í landinu, fyrir utan þá fáu sem hagnast af þeim.
Mest lesið Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Sjá meira