SI: Fjárfesting í steinsteypu orðin álitlegur kostur 10. desember 2009 15:35 „
Í ljósi lækkandi innlánsvaxta, hækkandi fjármagnstekjuskatts, nýrra laga um takmörkun á innistæðutryggingum og takmarkaðra fjárfestingakosta þá er ekki ólíklegt að ýmsir fari að líta á fjárfestingu í steinsteypu sem álitlegan fjárfestingakost."Þetta segir á vefsíðu Samtaka iðnaðarins (SI). Þar segir að margt bendi til að þess sé skammt að bíða að markaðurinn með íbúðahúsnæði fari að taka við sér aftur. Samkvæmt nýrri skýrslu VSÓ eru 1850 ónýttar nýjar íbúðir sem eru fokheldar eða lengra komnar á höfuðborgarsvæðinu. Inni í þeim tölum eru einbýlishús og aðrar eignir sem verið er að byggja til eigin nota og koma því ekki til sölu. Því má áætla að innan við 1500 nýjar íbúðir séu til sölu sem er u.þ.b. áætluð ársþörf á markaðinum.Sala á íbúðahúsnæði hefur verið mjög treg undanfarin tvö ár. Að meðaltali hefur verið þinglýst ríflega 50 kaupsamningum á viku í ár en að meðaltali var á árunum 2005-2007 þinglýst um 200 samningum. Ástæður þessa samdráttar eru ýmsar svo sem fjárhagserfiðleikar, atvinnuleysi og takmarkaður aðgangur að lánsfé en síðast en ekki síst spár um lækkanir á fasteignaverði. Því er uppsöfnuð þörf fyrir fjárfestingu í íbúðahúsnæði.Leigumarkaðurinn hefur s.l. tvö ár verið mjög líflegur. Fyrstu 11 mánuði þessa árs var þinglýst tæplega 10 þúsund samningum borið saman við tæplega 7 þúsund á sama tíma í fyrra og meðaltal áranna 2005-2007 er innan við 5 þúsund samningar. Aukningin frá meðaltali 2005-2007 er 105%. En nú er svo komið að framboðið leiguhúsnæði er orðið takmarkað og leiguverð þar með á uppleið sem leiðir til þess að fleiri fara að skoða þann möguleika að kaupa í stað þess að leigja.Eitt merki um aukinn áhuga á fasteignamarkaðinum eru auglýsingar fasteignasala þar sem óskað er eftir eignum á skrá.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira