Jón skipaði Árna sem tilnefndi Jón og sig sjálfan í bankastjórn Þorbjörn Þórðarson skrifar 28. desember 2009 18:37
Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, hefur tilnefnt sjálfan sig í stjórn Íslandsbanka. Jón Sigurðsson hefur verið tilnefndur sem formaður í stjórn bankans. Jón var stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins á síðasta ári þegar skilanefnd Glitnis var skipuð, en Árni Tómasson var einmitt skipaður af FME. Skilanefnd Glitnis bíður nú eftir samþykki FME á þeim 6 stjórnarmönnum sem skilanefndin hefur tilnefnt í bankaráð Íslandsbanka, á meðal þeirra sem eru tilnefndir er Jón Sigurðsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, en Jón var stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins fram að hruni, en hann var skipaður formaður þess í ársbyrjun 2008. Jón Sigurðsson hefur rík tengsl við Samfylkinguna og var skipaður stjórnaformaður FME af Björgvini G. Sigurðssyni viðskiptaráðherra. FME skipaði síðan skilanefnd Glitnis, sem stofnaði ISB Holding ehf. sem tilnefndi Jón sem stjórnarformann Íslandsbanka og fimm aðra stjórnarmenn. Glitnir er þrotabú og getur lögum samkvæmt ekki átt banka. Þess vegna var farin sú að leið að stofna ISB Holding ehf. sem sótti síðan um leyfi hjá FME til að eiga 95 prósent hlut í Íslandsbanka. Í stjórn þess félags eru Marta Eiríksdóttir, fyrrverandi stjórnarmaður í Íslandsbanka, Ólafur Ísleifsson, hagfræðingur og María Björg Ágústsdóttir, starfsmaður skilanefndar Glitnis. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafði ISB Holding ekkert með tilnefningu Jóns og Árna að gera, heldur hafði tilnefning hans verið ákveðin áður. Ákvörðun um tilnefningu var tekin af skilanefnd Glitnis. Á glærukynningu sem sýnd var lokuðum hópi kröfuhafa, svokölluðum ICC-kröfuhafahópi, fyrir tæpum tveimur mánuðum síðan, var Árni sjálfur nefndur sem mögulegur stjórnarmaður í Íslandsbanka ásamt Jóni. Tilnefning þeirra hefur því staðið til lengi. Í stuttu máli er það því Árni Tómasson sem skipar Árna Tómasson, í stjórn Íslandsbanka.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira