Feng gert að greiða 10 milljóna stjórnvaldssekt 23. nóvember 2009 15:57
Í nýrri ákvörðun Samkeppniseftirlitsins kemur fram að Eignarhaldsfélagið Fengur hf. hafi brotið gegn banni samkeppnislaga við því að samruni komi til framkvæmda áður en eftirlitið hefur heimilað hann. Fengur og Samkeppniseftirlitið gerðu sátt í málinu. Skal Fengur greiða stjórnvaldssekt að fjárhæð 10 milljónir króna vegna brotsins.Málið sem hér um ræðir er samruni Fengs og Ferðaskrifstofu Íslands s.l. sumar. Fjallað er um ákvörðunina á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins. Þar segir að í samkeppnislögum er lagt bann við því að samruni komi til framkvæmda áður en tilkynnt hefur verið um hann til Samkeppniseftirlitsins og ákvörðun eftirlitsins liggur fyrir um hvort samruninn hindri virka samkeppni, nema til komi sérstakt leyfi Samkeppniseftirlitsins.Þessari reglu er ætlað að tryggja að unnt sé með fullnægjandi hætti að vinna gegn samkeppnishamlandi samrunum. Er sérstaklega gert ráð fyrir því í samkeppnislögum að lögð séu viðurlög á fyrirtæki sem brjóta gegn þessari reglu.Samkeppniseftirlitið tilkynnti Feng það mat sitt að svo virtist sem brotið hefði verið gegn banni samkeppnislaga við framkvæmd á samruna Fengs og Ferðaskrifstofu Íslands. Í framhaldi af því leitaði Fengur til eftirlitsins og óskaði eftir því að sátt yrði gerð í málinu.Viðræður leiddu til þess að sátt var gerð við félagið líkt og Samkeppniseftirlitinu er heimilt samkvæmt samkeppnislögum. Sú heimild er til þess fallin að stytta rannsókn og málsmeðferð samkeppnisyfirvalda.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira