Um 500 ný störf hafa skapast 18. desember 2009 03:45 Styrkþegar ræða við ráðherra Valdimar Össurarson hjá Valorku fylgist með Sigmari Guðbjörnssyni hjá Stjörnu Odda ræða við Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Að baki þeim sjást Jóhann Örlygsson frá Háskólanum á Akureyri, fulltrúi verkefnisins LíFEldsneyti, og Kjartan Ragnarsson, fulltrúi verkefnis sem snýr að uppsetningu miðaldabaða við Deildartunguhver. Að baki Katrínar glittir í Sveinbjörn Höskuldsson frá Nox Medical.Fréttablaðið/GVA
Nær þrefalt fleiri umsóknir bárust Tækniþróunarsjóði um styrki á þessu ári en í fyrra. Núna bárust 267 umsóknir, en 91 árið áður. Þá bárust nítján umsóknir um öndvegisstyrki. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra kynnti haustúthlutun sjóðsins í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Alls fengu 28 verkefni styrk úr sjóðnum. Jafnframt héldu fulltrúar fimm verkefna sem hlutu styrk kynningu á verkefnum sínum. Fram kom í máli Katrínar að framlag til Tækniþróunarsjóðs hefði aukist um níutíu milljónir króna frá því í fyrra og að á þessu ári hefði sjóðurinn haft 960 milljónir króna til ráðstöfunar. Styrkir ársins námu alls 465 milljónum króna og runnu til 76 nýrra verkefna og fjörutíu verkefna sem hlutu framhaldsstuðning. Sjóðurinn veitir verkefnum stuðning í allt að þrjú ár. Þá var úthlutað sextíu milljónum króna til fjögurra „öndvegisverkefna“ í þremur undirflokkum, en það eru vistvænt eldsneyti, vistvænar byggingar og skipulag, og sjálfbær ferðaþjónusta. Katrín sagðist í opnunarræðu sinni vilja nota tækifærið og árétta mikilvægi uppbyggingar nýrra fyrirtækja, sprota- og hátæknifyrirtækja á tímum sem þessum. Hún sagði ánægjulegt að geta frá því greint að samkvæmt lauslegri samantekt hennar yfir fyrirtæki sem hefðu komist á legg síðustu mánuði og störfum sem hún vissi til að yrðu til á komandi mánuðum, hvort heldur það væri í tölvuleikjaiðnaði eða annars staðar hjá frumkvöðlum, skiptu þau störf hundruðum. „Bara það sem ég man eftir telur um það bil 500 störf, hvorki meira né minna. Og það er nú bara rúmlega álver,“ sagði hún og kvaðst hafa saknað ítarlegri umfjöllunar um þessa uppbyggingu. „En kannski er það vegna þess að ekki hefur þurft skurðgröfu eða skóflu til að búa til þessi störf, heldur bara skrifborð og tölvu.“ Katrín ítrekaði mikilvægi Tækniþróunarsjóðs og rifjaði upp að á sprotaþingi hefði hún eitt sinn sagt að fjórfalda þyrfti sjóðinn. „Það gerist vonandi fyrr en síðar,“ sagði hún og bætti við að þótt hún sem iðnaðarráðherra hefði ekki getað komið stækkuninni á hefði tekist að verja sjóðinn. „Að minnsta kosti verða á næsta ári settar í sjóðinn þrjátíu milljónir umfram það sem er í dag,“ sagði hún, en þá yrði stærð hans 720 milljónir króna. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira