Viðskipti innlent

Kaup Magma í HS hugsanlega ólögleg

Ingimar Karl Helgason skrifar
Kaup kanadíska félagsins Magma Energy í HS orku, kunna að fara á svig við íslensk lög, að mati Lagastofnunar Háskólans. Endanleg niðurstaða um lögmætið fáist ekki nema fyrir dómstólum.

Kanadíska félagið Magma Energy hefur keypt sig inn í HS orku, orkufyrirtæki Reyknesinga og á nú ríflega 40 prósenta hlut. Þetta var gert í gegnum sænsk félag sem upphaflega hét AB Grogrunden og var stofnað var í byrjun júní. Nafni félagsins var svo breytt í Magma Energy Sweden mánuði síðar.

Samkvæmt lögum um fjárfestingu erlendra aðila hér á landi, mega fyrirtæki og einstaklingar utan Evrópska efnahagssvæðisins, ekki eiga í íslenskt orkufyrirtæki. Nefnd sem sér um að fylgja lögunum eftir, hefur haft það til skoðunar og er búist við niðurstöðu í næsta mánuði.

Lagastofnun Háskóla Íslands hefur unnið lögfræðiálit fyrir nefndina um málið. Eftir því sem fréttastofa kemst næst telur lagastofnun að kaup kanadíska félagsins, í gegnum það sænska, séu á gráu svæði. Svo megi líta á að með því að nota sænska félagið séu íslensk lög sniðgengin. Nefndin geti lagt það til við efnahags- og viðskiptaráðherra að leyfi til fjárfestingarinnar verði ekki veitt. Það kunni þó að verða erfitt að rökstyðja að lögin hafi vísvitandi verið sniðgengin. Endanleg niðurstaða gæti vart fengist öðruvísi en fyrir dómstólum. Yrði niðurstaða dómstóla á annan veg, þá gæti það leitt til þess bótakröfu á hendur ríkinu.

Síðan kynni nefndin að líta svo á að eðlilega hafi verið að fjárfestingunni staðið og yrði þá ekki aðhafst frekar í málinu. Enn fremur gæti hún lagt það til við ráðherra, þar sem vafi leikur á niðurstöðunni, að lög um fjárfestingar erlendra aðila yrðu endurkoðuð til að eyða vafa í svona málum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×