Eignir Magnúsar öruggar í Rússlandi Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 5. maí 2009 18:53
Lítil verðmæti eru í gjaldþrota búi Magnúsar Þorsteinssonar. Eignir hans og eiginkonu hans hér á landi telja aðallega lúxusíbúð og húseignir á Akureyri. Hann var um tíma einn efnaðasti fjárfestir landsins en undanfarin misseri hafa eignir hans hér á landi orðið nær verðlausar. Magnús átti um tíma 10 prósent hlut í Icelandic Group í gegnum Frontline Holding. Straumur Burðarás fékk veð í þeim bréfum þegar Magnús fékk eins milljarða króna lán frá bankanum. Þetta lán varð Magnúsi svo að falli í gær þegar hann var úrskurðaður gjaldþrota. Aðrar eignir Magnúsar hér á landi er 33% í Eimskip í gegnum Frontline Holding en sá hlutur hefur fallið gríðarlega í verði að undanförnu og er um 622 milljóna króna virði í dag. Þá á Magnús fyrstu og þriðju hæð í reisulegu húsi sem er við Hafnarstræti á Akureyri. Eiginkona hans er skráð fyrir öðru húsi þar í bæ sem er tæpir 300 fermetrar. Magnús keypti líka glæsiíbúð í skuggahverfinu árið 2007 en hún var skráð á eiginkonu hans síðasta haust. Magnús hefur undanfarin ár verið í Rússlandi þar sem hann hefur fjárfest í fasteignum. Hann á einnig prentsmiðju ásamt Björgólfi Guðmundssyni auk þess sem hann hefur tekið þátt í hafnarverkefni í Pétursborg. Verðmæti eigna Magnúsar í Rússlandi er að öllum líkindum meira en það er hér á landi. Lögfræðingur sem fréttastofa ræddi við í dag telur það mjög erfitt ef ekki ómögulegt að sækja rétt á hendur honum í Rússlandi þar sem landið er ekki aðili að Lugano samningnum sem kveður á um aðfararhæfi dóma sem eru kveðnir upp í öðrum löndum. Það þyrfti því að höfða mál gegn Magnúsi fyrir rússneskum dómstólum til að hann yrði aðfararhæfur þar í landi. Fréttastofa reyndi í dag að ná tali af Magnúsi en hann neitaði viðtali.
Mest lesið Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Viðskipti innlent Uppsagnir í Arion banka Viðskipti innlent Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Samstarf Hekla innkallar 2.610 bíla Neytendur Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Framúrskarandi fyrirtæki Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Sjá meira