Atvinnuleysi í nóvember 8 prósent 12. desember 2009 04:30 Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra og Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, á fundi fyrr á árinu. Fréttablaðið/Vilhelm
Skráð atvinnuleysi í nóvember var 8 prósent, eða að meðaltali 13.357 manns, samkvæmt nýjum tölum Vinnumálastofnunar. Atvinnuleysi jókst að meðaltali um 5,3 prósent frá því í október, eða um 675 manns. „Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 3,3 prósent, eða 5.445 manns,“ segir í tilkynningu stofnunarinnar. Í lok nóvember voru 15.017 án atvinnu, en voru 14.369 í lok október. „Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 12.141, af þeim voru 2.226 í einhvers konar úrræðum á vegum Vinnumálastofnunar, auk þess sem mikill fjöldi fer í viðtöl hjá ráðgjöfum stofnunarinnar og á kynningarfundi,“ segir í skýrslu Vinnumálastofnunar. Mest var atvinnuleysið á Suðurnesjum, 13 prósent, en minnst á Vestfjörðum, 2,8 prósent. „Atvinnuleysi eykst um 6,3 prósent meðal karla en um 3,8 prósent meðal kvenna.“ Í Hagsjá, efnahagsvefriti Landsbankans, kemur fram að sé mánaðarlegt atvinnuleysi eins og Vinnumálastofnun skráir það leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum komi í ljós að það lækkar lítillega frá síðasta mánuði. Sama gerðist í október. „Venjulega hefur skráð atvinnuleysi verið í hámarki í upphafi hvers árs sem skýrir hluta ástæðunnar að baki lækkun á árstíðaleiðréttri tölu,“ segir þar. - óká
Mest lesið Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Atvinnulíf Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Skatturinn birtir álagningu í dag Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira