Óttast svipuhögg ríkisstjórnarinnar Höskuldur Kári Schram skrifar 5. desember 2009 18:43
Stjórnarandstaðan óttast að fjárlaganefnd Alþingis þurfi að sitja undir svipuhöggum ríkisstjórnarinnar til að flýta fyrir afgreiðslu Icesave málsins. Nefndinni er ætlað að fara yfir fjölmörg álitamál á stuttum tíma. Þingmenn hafa nú rætt icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar í tæpar eitt hundrað klukkustundir. samkvæmt samkomulagi ríkisstjórnarinnar og stjórnarandstöðuflokkanna á að ljúka annarri umræðu á þriðjudag en þá fær fjárlaganefnd málið aftur til umfjöllunar. Stjórnarandstaðan fékk það í gegn að fjárlaganefnd skoði 16 álitamál sem snerta meðal annars skuldastöðu og greiðslugetu ríkissjóðs. Þá verður ensk lögfræðistofa ráðin til að kanna lagalegar hliðar Icesave samningsins. Stjórnarflokkarnir telja að hægt verði að ljúka þessari vinnu á nokkrum dögum. „Ef að málið kemur nefndarinnar aftur þá setjumst við yfir hvaða óskir og væntingar um málsmeðferð og verðum að vinna úr því en markmiðið er að klára málið fyrir jól," segir Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar. Stjórnarandstaðan óttast að ríkisstjórnin reyni að keyra málið í gegnum nefndina. „Það er allavega alveg ljóst að hún verður að fá tíma fjárlaganefndin þetta eru fjölmörg álitaefni sem að við höfum verið að benda á að þurfi að fara yfir. Þá verður fjárlaganefndin að fá þann tíma og það svigrúm sem að við þurfum til þess að fara yfir þessa þætti og ég vona innilega að fjárlaganefndin þurfi ekki að sitja undir svipuhöggum frá ríkisstjórninni til að klára málið," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins. „Auðvitað væri eina vitið að taka nokkrar vikur í þetta því þetta eru mjög stórar spurningar. ég vona bara að áherslan hjá nefndinni verði að komast til botns í málinu frekar en að horfa á einhvern tiltekinn tímaramma. því við höfum alveg tíma til að skoða málið," segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Mest lesið Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Viðskipti erlent Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Kaupmáttur heldur áfram að aukast Neytendur Fleiri fréttir Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað Sjá meira