Skuldatryggingarálag ríkisins lækkar að nýju 3. desember 2009 11:55
Eftir töluverða hækkun skuldatryggingarálags íslenska ríkisins í nóvember hefur það lækkað á undanförnum dögum. Hækkunin var mikil í síðustu viku og stóð áhættuálagið til fimm ára í 427 punktum síðastliðinn föstudag en hefur síðan lækkað um 35 punkta og stendur nú í 391 punktum. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að rekja megi þessa sveiflu síðustu daga til frétta frá Dubai en eins og kunnugt er var tilkynnt um mikla erfiðleika eignarhaldsfélags sem er í ábyrgð furstadæmisins í síðustu viku en margir bankar eiga mikla hagsmuni að gæta vegna lána til eignarhaldsfélagsins. Þetta leiddi m.a. til þess að skuldatryggingarálag Dubai rauk upp um 334 punkta á nokkrum dögum, eða úr 313 punktum í 649 punkta, en hefur lækkað aftur og stendur nú í 433 punktum. Þessi þróun áhættuálags íslenska ríkisins undanfarna daga er því ekkert einsdæmi. Þegar litið er yfir þróun skuldatryggingarálags nokkurra evrópuríkja má sjá að þeim mun hærra sem það er, þeim mun næmari er það fyrir titringi á mörkuðum sem þessum. Ætti það ekkert að koma á óvart. Í síðustu viku þegar áhættuálag flestra ríkja hækkaði var munurinn á hæsta og lægsta gildi áhættuálagsins um 55 punktar á Lettland, 45 punktar á Ísland, 25 punktar á Grikkland og 4 punktar á Írland og er þessi röðun í samræmi við skuldartryggingarálag ríkjanna. Einnig er þetta í samræmi við lánshæfiseinkunnir ríkjanna sem kemur augljóslega ekki heldur á óvart enda er það annar mælikvarði á áhættu skuldara. Hjá matsfyrirtækinu Fitch er Írland (AA+) því með hæstu lánshæfiseinkunnina en Lettland (BB+) með þá lægstu fyrir erlendar langtímaskuldbindingar.
Mest lesið Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira