Með uppistand í kanadískri stofu 23. júní 2009 04:00 rökkvi vésteinsson Rökkvi er nýkominn heim frá Kanada þar sem hann hélt þrjár uppistandssýningar.fréttablaðið/valli
Grínistinn Rökkvi Vésteinsson hélt nýverið þrjár uppistandssýningar í Kanada, þar af eina í heimahúsi í Montreal. Þar er haldið uppistandskvöld einu sinni í viku sem nefnist The Too Much Show þar sem grínistar stíga á svið í miðri stofu heima hjá listamanni nokkrum. „Þetta er með því mest spes sem ég hef gert í uppistandi," segir Rökkvi. „Það er nett ruglaður málari sem á þetta sem hengir upp málverkin sín úti um allt. Þarna má reykja af því að þetta er heima hjá honum, þannig að þetta var haldið í hitasvækju og reyk. Svo drapst hljóðneminn líka þannig að ég var hljóðnemalaus í ógeðslegri hitasvækju og reyk að æpa yfir áhorfendur. Ég er mjög feginn að hafa verið í söngtímum því þeir björguðu því að ég skyldi ekki rústa röddinni í mér," segir hann. Rökkvi kom einnig fram á Comedyworks-klúbbnum í Montreal og YukYuk"s í Ottawa, en Yuk-Yuk"s er stór keðja af grínklúbbum í Kanada. Vann hann einmitt uppistandskeppni í þeim klúbbi fyrir þremur árum. Næst á dagskrá hjá Rökkva er að skipuleggja uppistandskvöld hér á landi fyrir belgíska atvinnugrínistann Lieven Scheire sem kemur hingað í júlí. Hann kom síðast hingað fyrir þremur árum og skemmti gestum með gríni sínu og glensi.- fb
Mest lesið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Mömmu þykir ekki vænna um Friðrik Dór en Jón Ragnar Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Lífið Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Lífið Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Líður bókstaflega óstöðvandi í góðu fitti Tíska og hönnun Fleiri fréttir Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Friðrik Ómar setur Reykhúsið aftur á sölu og lækkar verðið Linda lætur sér Lindarbraut lynda Sjá meira