Gjaldþrot Seðlabankans vegur þungt 29. desember 2009 12:01
Vextir og verðbætur af skuld ríkissjóðs vegna gjaldþrots Seðlabankans samsvara öllum þeim skattahækkunum sem boðaðar hafa verið á næsta ári að sögn Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Hún segir að ef Icesave frumvarpið verði fellt muni það tefja endurreisn efnahagslífsins. Þriðja og síðasta umræða um Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar hófst í gær en 20 voru á mælendaskrá þegar fundi var frestað um klukkan ellefu í gærkvöldi. Ákveðið var á fundi forseta Alþingis með þingflokksformönnum í gærkvöldi að ganga til atkvæða um frumvarpið á morgun. Þá verða einnig greidd atkvæði um breytingartillögu Péturs Blöndal, þingmanns Sjálfstæðisflokks, en þar er lagt til að Icesave málið verði sett í þjóðaratkvæðagreiðslu. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir nauðsynlegt að ljúka málinu. „Það er margt í húfi og mér finnst fólk ræða of lítið um það hvað hér muni ske ef við samþykkjum ekki þetta mál. Það mun tefja alla okkar endurreisn í efnahagslífinu á hvaða sviði sem er þannig að það er lang hagstæðast fyrir íslenska þjóð að þessu máli verði lokið." Jóhanna bendir á þjóðin þurfi að taka á sig stærri skuldbindingar en Icesave. „Þar er til dæmis málefni Seðlabankans og skuldir sem við þurfum að greiða vegna þess hvernig þar var haldið að málum sem er meiri skuld en Icesave skuldin," segir Jóhanna. Vextir og verðtrygging af þeirri skuld samsvari þeim skattahækkunum sem stjórnvöld verði því miður að fara í núna. Gjaldþrot Seðlabankans kostar ríkissjóð um 400 milljarða króna en boðaðar skattahækkanir á næsta ári nema um 45 milljörðum króna.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira