Stjórnarkjör Íslandsbanka: Beðið eftir staðfestingu FME Þorbjörn Þórðarson skrifar 29. desember 2009 12:06
Tilnefning Árna Tómassonar og Jóns Sigurðssonar í bankaráð Íslandsbanka bíður nú staðfestingar FME. Árni Tómasson er í stjórn Alfesca, en fyrirtækið er stór skuldari hjá Íslandsbanka. Þorbjörn Þórðarson. Eins og fréttastofa greindi frá í gær er Árni Tómasson annar þeirra tveggja Íslendinga sem tilnefndir hafa verið í bankaráð Íslandsbanka. Hinn er Jón Sigurðsson, fyrrverandi seðlabankastjóri og stjórnarformaður FME. Tilnefningarnar bíða nú staðfestingar Fjármálaeftirlitsins, sem kannar fjárhagsleg tengsl og bakgrunn þeirra stjórnarmanna sem tilnefndir eru. Árni Tómasson er í stjórn Alfesca, framleiðslufyrirtækis á sviði sjávarafurða, sem er að stærstum hluta í eigu Ólafs Ólafssonar og franska matvælafyrirtækisins Lur Berri. Alfesca er stór skuldari hjá Íslandsbanka, en Glitnir tók í að fjármagna fyrirtækið á sínum tíma ásamt Kaupþingi og evrópskum bönkum. Samkvæmt upplýsingum frá skilanefnd Glitnis í gær var það ÍSB Holding ehf., sérstakt dótturfélag skilanefndarinnar sem heldur utan um 95 prósent hlutinn í Íslandsbanka, sem tilnefndi bankaráðsmennina. Hið rétta er að ÍSB Holding hafði ekkert með tilnefningarnar að gera, þær höfðu verið ákveðnar áður, af skilanefnd Glitnis. Það er því Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, sem er að tilnefna sjálfan sig og Jón Sigurðsson. Það var enimitt FME sem skipaði Árna Tómasson í skilanefndina í október 2008, en Jón var stjórnarformaður FME á þeim tíma. Með tilnefningu Jóns i bankaráðið hefur því raun hringnum verið lokað. FME er kunnugt um stjórnarsetu Árna hjá Alfesca. Áður hafa verið gerðar athugasemdir við veru Árna í skilanefnd Glitnis, vegna stjórnarsetu hans hjá Alfesca. Hann hefur svarað því til að hann gæti þess að ræða ekki við samstarfsmenn sína um mál sem tengjast Alfesca og fjórum sinnum hafi hann vikið af fundi vegna stjórnarsetunnar.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira