Getur ekki afturkallað greiðslur frá Milestone til Ingunnar 29. desember 2009 18:31
Skiptastjóri þrotabús Milestone mun ekki geta afturkallað greiðslur upp á alls 5,2 milljarða króna til Ingunnar Wernersdóttur, systur Wernersbræðra, þar sem þær áttu sér stað meira en tveimur árum áður en Milestone fór í greiðslustöðvun. Ingunn Wernersdóttir, systir Karls og Steingríms Wernerssona sem voru helstu eigendur Milestone, fékk samtals 5,2 milljarða króna í greiðslur frá Milestone á árunum 2006-2007. Um var að ræða greiðslur vegna kaups bræðranna á hlut hennar í Milestone. Í skýrslu skiptastjóra Milestone, sem kynnt var fyrir kröfuhöfum í síðustu viku og Viðskiptablaðið greinir frá í dag, kemur fram að líta megi á greiðslurnar sem lán. Félag bræðranna fékk lán hjá Milestone til að kaupa Ingunni út. Í skýrslu skiptastjórans segir að nánast ekkert hafi verið greitt af umræddri skuld bræðranna við Milestone. Samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti má rifta gerningum sem fela í sér ótilhlýðilega ráðstöfun fjármuna eða samningum sem fela í sér gjafir til nákominna í allt að 24 mánuði áður en þrotamaður óskaði eftir greiðslustöðvun. Það er því afar ólíklegt að skiptastjórinn geti afturkallað greiðslurnar þar sem þær áttu sér stað meira en tveimur árum áður en Milestone fór í greiðslustöðvun. Ingunn vildi ekki tjá sig um málið þegar fréttastofa náði tali af henni í dag, en eftir því sem fréttastofa kemst næst hefur hún ráðið lögmenn til að gæta hagsmuna sinna í málinu.
Mest lesið Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Viðskipti erlent Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur Vísar ásökunum um samráð á bug Neytendur Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Viðskipti innlent Forstjóri Kaldvíkur lét af störfum í samráði við stjórn Viðskipti innlent Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Borið á kvörtunum undan leigubílstjórum Neytendur Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Gagnrýna seinagang olíufélaganna og ýja að samráði Neytendur Fleiri fréttir Forstjóri Kaldvíkur lét af störfum í samráði við stjórn Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Sjá meira
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur