Völusteinn kaupir Festi á 3,2 milljarða 29. desember 2009 16:54 Hafnarfjarðarhöfn. MYND/GVA
Skrifað hefur verið undir samning milli Jóns Auðunar Jónssonar hrl., skiptastjóra þrotabús útgerðarfyrirtækisins Festar ehf. í Hafnarfirði og eigenda Útgerðarfélagsins Völusteins ehf., um að Útgerðarfélagið Völusteinn ehf. kaupi allan rekstur og eignir þrotabúsins, sex báta, fiskvinnslu og aflaheimildir. Kaupverðið er 3,2 milljarðar króna að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbankanum. Útgerðarfélagið Völusteinn ehf. er í eigu Ólafs Jens Daðasonar skipstjóra og Gunnars Torfasonar sjávarútvegsfræðings. „Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annaðist sölu þrotabúsins í umboði skiptastjóra. Tilhögun sölunnar var kynnt með auglýsingu 4. desember. Mikill áhugi var á eignunum og óskuðu 104 aðilar eftir gögnum um þær og bárust skiptastjóra 36 óskuldbindandi tilboð. Hæstbjóðendum var boðið að leggja fram bindandi kauptilboð, og bárust 5 tilboð þann 23. desember. Að undangengnu mati skiptastjóra á þeim tilboðum og áreiðanleika fjármögnunar tilboðsgjafa, var gengið til samningaviðræðna við Útgerðarfélagið Völustein ehf. og skrifað undir kaupsamning 29. desember," segir ennfremur í tilkynningunni. Fiskvinnslan áfram starfrækt í Hafnarfirði Útgerðarfélagið Völusteinn ehf. tekur við rekstri þrotabúsins frá og með áramótum. Eigendur hafa lýst því að reksturinn verði endurskipulagður strax í janúar, að fiskvinnslan verði áfram starfrækt í Hafnarfirði og að kappkostað verði að verja þau störf sem fyrir eru. Fyrir gerir Útgerðarfélagið Völusteinn út línubátinn Hrólf Einarsson ÍS 255 frá Bolungarvík. Með kaupum Útgerðarfélagsins Völusteins ehf. á rekstri og eignum þrotabús Festar verða aflaheimildir fyrirtækisins 1.988 þorskígildi.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira