Yfirlýsing frá útibússtjóra Byrs vegna Exeter 27. nóvember 2009 18:41
Auður Arna Eiríksdóttir, útibússtjóri Byrs í Borgartúni vill koma á framfæri eftirfarandi leiðréttingu vegna fréttaflutnings síðastliðna daga í tengslum við skoðun á lánveitingum Byrs til Exeter Holdings og tengdum viðskiptagjörningum: Leiðrétting Gætt hefur nokkurs misskilnings í fréttaflutningi af málefnum Byrs síðustu daga og hefur mitt nafn að ósekju verið bendlað við þau mál. Hið rétta í málinu er að ég kom ekki á neinu stigi að ákvarðanatöku um lánveitingu til Exeter Holdings haustið 2008 né hafði ég vitneskju um hvaða forsendur lægju henni að baki. Við millifærslur í tengslum við viðskipti Exeter og MP banka fylgdi ég aðeins fyrirmælum yfirmanna minna og gerði það aukinheldur með fullri vitneskju þar til bærra eftirlitsaðila innan Byrs. Ég hef ávallt sinnt mínum störfum af heilindum og með hagsmuni Byrs að leiðarljósi og því er það mér sérstaklega þungbært að gefið sé í skyn að ég hafi setið beggja megin borðs í einhverju máli sem varðar bankann. Staðreyndin er sú að ég bjó ekki yfir neinni vitneskju um að hagsmunir annarra kynnu að hafa verið teknir fram yfir hagsmuni Byrs. Rannsókn embættis sérstaks saksóknara verður að leiða það í ljós, hvort eitthvað slíkt hafi verið á ferðinni. Ég vil einnig ítreka að persónuleg viðskipti mín voru eingöngu við MP Banka, sem hirti bréf mín eftir veðkall nokkru áður en þessi lánafyrirgreiðsla kom til. Ég hef aldrei átt í viðskiptum við Exeter Holding eins og ranglega hefur verið haldið fram í fjölmiðlum. Ég vek einnig athygli á því að ég hef sinnt störfum hjá Byr í heilt ár frá því að mér voru falin umrædd verkefni, sem líta verður á sem viðurkenningu þess að ég hafi fylgt starfsreglum í hvívetna og verið í góðri trú að framfylgja fyrirmælum minna yfirboðara. Ég hef aðstoðað embætti sérstaks saksóknara við gagnaöflun varðandi málið og þegar mætt til skýrslutöku hjá þeim. Ég veitti fúslega umbeðnar upplýsingar og tel að þar með sé málið komið í réttan og eðlilegan farveg og fagna því jafnframt að málið verði til lykta leitt. Með vinsemd og virðingu, Reykjavík, 27. nóvember 2009, Auður Arna Eiríksdóttir
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira