Segir skuldaúrræði bankanna sjónhverfingar Sigríður Mogensen skrifar 5. desember 2009 18:35
Skuldaúrræði bankanna eru talnaleikfimi, sem eiga að fá fólk til að trúa því að greiðslubyrðin sé að lækka. En hún er ekki að lækka eins mikið og gefið er í skyn, segir Marinó G. Njálsson hjá Hagsmunasamtökum heimilanna og telur að líkja megi úrræðunum við sjónhverfingar. Á fjórða hundrað manns söfnuðust saman á Austurvelli í dag, á kröfufundi Hagsmunasamtaka heimilanna og Nýs Íslands. Stóru bankarnir þrír hafa nú allir kynnt skuldaúrræði sín. Fréttastofa bar saman þá höfuðstólsleiðréttingu sem bankarnir bjóða: Íslandsbanki býður upp á 25% lækkun á höfuðstóli lána í erlendri mynt og verðtryggð lán geta lækkað um allt að 10%. Viðskiptavinir Arion banka geta fengið allt að 30% leiðréttingu á höfuðstól lána í erlendri mynt. Þá býðst þeim að höfuðstóll beggja lánategunda lækki niður í 110% af markaðsvirði. Landsbankinn býður upp á 27% leiðréttingu erlendra lána en enga lækkun á verðtryggðum krónulánum. Í fyrstu lítur út fyrir að bankarnir séu að bjóða gull og græna skóga og afskriftir á lánum. En öllum þessum leiðréttingum fylgir verðmiði - til dæmis hækka vextirnir og þar með greiðslubyrðin. Marinó G. Njálsson hjá Hagsmunasamtökum heimilanna hefur kynnt sér tölurnar til hlýtar. Hann segir að heildargreiðslubyrðin sé á endanum sú sama í flestum tilfellum. Arion banki bjóði þó best, þar verði einhver lækkun á heildargreiðslum. Ef höfuðstóllinn er hins vegar færður niður um 40% væri um raunverulegan ávinning að ræða.
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira