Vilhjálmur: Ekki verður fallist á neinar skattahækkanir 2011 20. nóvember 2009 10:47
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA bendir á að ríkisstjórnin hafi tæmt skattahækkunarpokann og ekki verði hægt að fallast á neinar frekari skattahækkanir vegna fjárlaga fyrir árið 2011. Þá þurfi að mæta allri aðlögunarþörfinni með lækkun útgjalda.Þetta kemur fram í grein sem Vilhjálmur hefur skrifað og birt er á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins. Þar fjallar hann ítarlega um skattamál atvinnulífsins og afstöðu SA til fyrirhugaðra skattahækkana og skattabreytinga ríkisstjórnarinnar. Hann„Ríkisstjórnin hefur nú kynnt útfærð áform sín um skattahækkanir vegna fjárlagagerðar fyrir árið 2010. Töluverðar breytingar hafa orðið á þessum áformum frá því sem kynnt var í fjárlagafrumvarpinu sem lagt var fram í októberbyrjun. Á undanförnum vikum hafa viðræður verið í gangi milli Samtaka atvinnulífsins og stjórnvalda um það sem snýr að atvinnulífinu í þessum skattahækkunum," segir Vilhjálmur.„Ekki tókst að ljúka þessum viðræðum þegar kom að framlengingu kjarasamninga í lok október og framgangur stöðugleikasáttmálans frá því 25. júní var metinn. Ákveðið var að láta reyna áfram á hvort hægt væri að ná ásættanlegri niðurstöðu. Nú þegar hún liggur fyrir er ljóst að komið hefur verið til móts við óskir Samtaka atvinnulífsins en þó eru mikilvæg mál sem enn er ekki samstaða um."Í greininni fjallar Vilhjálmur m.a. um mikilvægi fjárfestinga, hækkun atvinnutryggingagjalds, atlögu að rekstrarskilyrðum sjávarútvegsins og sérkennilega umhverfisstefnu ríkisstjórnarinnar auk þess að benda á galla í fyrirhuguðum skattkerfisbreytingum.Þá undirstrikar Vilhjálmur að Samtök atvinnulífsins hafi leitast við að sýna fulla ábyrgð í umfjöllun sinni um skattamál og í viðræðum við ríkisstjórnina. Hallarekstur ríkissjóðs af núverandi stærðargráðu sé ekki kostur og þess vegna verði að taka á málinu.„Meginatriði er að tryggja fjárfestingar í atvinnulífinu og hagvöxt á næsta ári þannig að skattahækkanir lendi ekki á minnkandi skattstofnum. Þá fer illa. Samtökin hafa fyrst og fremst verið að reyna að draga úr skaðsemi óhjákvæmilegra skattahækkana fyrir atvinnulífið eins og mögulegt hefur verið þannig að fjárfestingar og uppbygging í atvinnulífinu haldi áfram. Ekki er öllum verkum lokið. Ennþá standa mál útaf borðinu. Sjávarútvegurinn verður að fá starfsfrið, annars getur hann ekki tekið þátt í uppbyggingunni og virðisaukaskattinn verður að laga," segir Vilhjálmur Egilsson.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira