Lífsýnasafnið ekki til sölu 19. nóvember 2009 04:15 Úr húsakynnum ÍE. Fjölmargir hafa áhyggjur af afdrifum verðmæts lífsýnabanka Íslenskrar erfðagreiningar. Í honum eru gögn þrjú hundruð þúsund einstaklinga.Fréttablaðið/Vilhelm
Saga Investments býður 1,7 milljarða króna fyrir Íslenska erfðagreiningu. Erlendir fjölmiðlar segja DeCode hafa runnið út á tíma. Þeir hafa áhyggjur af lífsýnabanka Íslenskrar erfðagreiningar. Fjölmargir erlendir fjölmiðlar hafa birt fréttir um greiðslustöðvun DeCode, sem lögð var fram í Delaware í Bandaríkjunum á þriðjudag. Þeir eru sammála um að sala á genaprófum hafi ekki staðist væntingar, handbært fé fyrirtækisins brunnið upp og það lent í greiðsluerfiðleikum. Á sama tíma og greiðslustöðvun deCode var lögð fram gerði fjárfestingarfélagið Saga Investments bindandi tilboð í reksturinn. Tilboðið hljóðar upp á fjórtán milljónir dala, jafnvirði 1,7 milljarða íslenskra króna. Þar af er ellefu milljónum ætlað að duga á greiðslustöðvunartíma DeCode sem endar í janúar, að sögn Bloomberg-fréttaveitunnar. Nokkrir netmiðlar sögðu í gær kaupin tímabundna lausn. Hætt væri við að félagið færi á hliðina innan nokkurra ára, rættist ekki úr áætlunum. Breska dagblaðið Times varaði við því að nýir eigendur fyrirtækisins kynnu með kaupunum að komast yfir dýrmætan lífsýnabanka Íslenskrar erfðagreiningar og gætu nýtt hann með öðrum hætti en upphaflega hefði staðið til. Í safni Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE) eru lífsýni 140 þúsund Íslendinga. Álíka mikið af gögnum er frá erlendum einstaklingum. Persónuvernd hefur lýst yfir áhyggjum af afdrifum safnsins. Kári Stefánsson, forstjóri DeCode, segir í samtali við Fréttablaðið ÍE eiga lífsýnabankann og lúti hann afar ströngum skilyrðum Persónuverndar og fleiri eftirlitsaðila. Ekki komi til greina að skilja hann frá félaginu. Sé það stefnan verði ekkert úr sölunni á Íslenskri erfðagreiningu. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira