Innlent

Segir mikilvægara að auka tekjur en að skera niður

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Árni Stefán Jónsson er formaður SFR.
Árni Stefán Jónsson er formaður SFR.

Innan BSRB og Starfsmannafélags ríkisins hafa menn verið tiltölulega jákvæðir út í þá hugmyndafræði sem unnið er eftir í tillögum um skattabreytingarnar sem ríkisstjórnin kynnti í dag, segir Árni Stefán Jónsson, formaður SFR. Með tillögunum sé þeim hlíft sem hafi lægst launin. „Þeirri hugmyndafræði höfum við verið fylgjandi í þessari skattaumræðu og mér sýnist það vera niðurstaðan sem hefur orðið," segir Árni Stefán.

Árni Stefán segist ekki vera talsmaður skattahækkana. „En þegar maður stendur frammi fyrir einhverju vali um það hvort það eigi að skera niður í rekstri opinberra stofnana eða þá að reyna að ná meiru inn með meiri tekjum að þá höfum við ályktað um að við erum talsmenn þess að við viljum að tekjuhliðin sé skoðuð út í þaula," segir Árni Stefán. SFR kjósi frekar að tekjur séu auknar en að opinber þjónusta sé skert.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambandsins, sagðist ekki hafa kynnt sér tillögurnar nægjanlega vel til þess að geta tjáð sig um þær að svo komnu máli.






Tengdar fréttir

Vilhjálmur: Í takt við það sem búist var við

„Þetta er svona í takt við það sem maður hafði búist við en ekki allt sem maður hefði skrifað upp á," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um skattatillögur ríkisstjórnarinnar. Hann segist hafa heyrt af tillögunum í fréttum en ekki kynnt sér þær umfram það.

Tekjuskattur á millitekjufólk hækkar

Ríkisstjórnin hyggst taka upp þriggja þrepa skattkerfi. Frá þessu greindu Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á blaðamannafundi sem hófst klukkan þrjú í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×