Viðskipti innlent

BILLY-vísitalan kemur í staðinn fyrir Big Mac vísitöluna

Í kjölfar lokunar McDonald's hamborgarastaðanna á Íslandi hafa vaknað spurningar um hvernig hægt verði að bera saman verðlag á milli Íslands og annarra landa. Lausnin er einföld. Hægt verður að nota svokallaða BILLY-vísitölu en hún byggir á verði samnefndra bókahilla sem IKEA framleiðir og seldar eru í 30 löndum.

Hagfræðideild Landsbankans fjallar um málið í Hagsjá sinni. Þar segir að eins og kunnugt er hefur tímaritið The Economist birt Big Mac vísitölu sína árlega frá árinu 1986 til að meta kaupmáttarjafnvægi gjaldmiðla og hefur íslenski Big Mac borgarinn jafnan skorað býsna hátt í könnunum, þ.e. hann verið hlutfallslega dýr samanborið við önnur lönd.

Á dögunum birtist í á vef Bloomberg fréttaveitunnar samanburður á verði bókahilla framleiddum af IKEA sem heita BILLY. Hillurnar hafa verið framleiddar í 30 ár og eru til í IKEA verslunum um allan heim. Í samanburðinum sem birtist kom í ljós að Billy bókahillan er tæplega 10% ódýrari á Íslandi, en hún er að meðaltali í þeim löndum sem könnunin náði yfir.

Minnst kostar hún í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, eða jafnvirði 47,6 Bandaríkjadala en dýrust er hún í Ísrael og kostar hún jafnvirði 103,5 Bandaríkjadala. Hillan kostaði jafnvirði 54,9 Bandaríkjadala á Íslandi þegar verðkönnunin fór fram. Verðunum var safnað á tímabilinu 5-7. september sl. en miðað var við meðalgengi Bandaríkjadals síðustu 30 daga til og með 9. september.

Myndin er því talsvert önnur þegar kemur að hillunum samanborið við hamborgarana. Þegar Economist birti Big Mac vísitölu sína í sumar var borgarinn sá fimmti dýrasti af þeim löndum sem skoðuð voru.

Samkvæmt útreikningum Economist frá því í sumar ætti Bandaríkjadalurinn að kosta 179 kr. til að kaupmáttarjafnvægi á Big Mac hamborgara héldist, en hann ætti að kosta 116 kr. til að kaupmáttarjafnvægi á BILLY bókahillum héldist á milli Íslands og Bandaríkjanna.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×