AGS: Endurhanna og afskrifa þarf 66% af fyrirtækjalánum 3. nóvember 2009 14:00
Samkvæmt innri endurskoðun bankanna þriggja þarf að endurhanna eða afskrifa um 66% af fyrirtækjalánunum á bókum þeirra. Þetta er eitt af því sem fram kemur í vinnuskýrslu starfshóps Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um málefni Íslands hjá sjóðnum. Samkvæmt skýrslunni er íslenski fyrirtækjageirinn verulega skuldsettur í erlendri mynt og yfir 20% af stærstu fyrirtækjunum eru í greiðslustöðvun eða gjaldþrotaskiptum. Gjaldþrotum fyrirtækja hefur fjölgað verulega á árinu í ár og eru nú 20% fleiri en á sama tíma í fyrra. Hvað heimilin varðar kemur fram í skýrslunni að 20% íslenskra heimila séu með neikvæða eiginfjárstöðu í fasteignum sínum. Þar að auki spári vinnuhópurinn því að mörg fleiri heimili muni lenda í sömu aðstæðum haldi fasteignarverð áfram að falla á Íslandi eins og verið hefur. Í skýrslunni segir einnig að um 20 prósent af heimilum landsins séu með of hátt skuldahlutfall miðað við greiðslugetu. Í bönkunum sjálfum hefur gjaldföllnum lánum fjölgað um 15 til 17% í heildina og eignamöt sem unnin hafa verið gefa dökka mynd um gæði þeirra eigna sem bankarnir hafa veð í, að því er segir í vinnuskýrslunni. Telja verður að afskrifa þurfi um 50-60% af lánunum í viðbót við þær afskriftir sem þegar hafa verið gerðar. Hvað ríkissjóð varðar munu brúttóskuldir hans á árinu í ár aukast upp í um 125% af landsframleiðslu ársins. Fram kemur í skýrslunni að endurfjármögnun Seðlabankans hafi reynst kostnaðarsamari en gert var ráð fyrir og nemi hún 18,5% af landsframleiðslu. Á móti þessu komi að endurfjármögnun bankanna sjálfra er kostnaðarminni en áður var talið og að Icesave-skuldir verði einnig minni en áður var talið.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Sjá meira