Forstjórinn ekki uggandi 17. nóvember 2009 05:45 Hermann Guðmundsson forstjóri N1 segir fyrirtækið eiga fé á reikningi og hafi greitt niður skuldir fyrir gjalddaga.
Framkvæmdastjórar og aðrir yfirmenn N1 hafa síðustu daga innleyst afkomutengd laun sem þeir eiga hjá félaginu vegna afkomu fyrirtækisins á síðasta ári. Upphæðirnar nema tugum milljóna króna, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Eftir því sem næst verður komist telja stjórnendur fyrirtækisins ekki útilokað að það lendi í vanda vegna skulda og taki lánardrottnar það yfir. Gerist slíkt fá þeir ekkert fyrir sinn snúð. N1 hagnaðist um 474 milljónir króna á fyrri hluta þessa árs saman borið við 98 milljónir á sama tíma í fyrra. Veltan jókst um 12,5 prósent á milli ára og nam 17,2 milljörðum króna í ár. Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, vildi ekki tjá sig um launakjör starfsmanna í gær. Langtímaskuldir N1 nema 8,5 milljörðum króna og eru á gjalddaga á næstu tveimur árum, samkvæmt síðasta árshlutareikningi félagsins. Tveir milljarðar króna voru á gjalddaga eftir um tvo mánuði og nokkuð liðið frá því fjórðungur skuldarinnar var greiddur niður. Frá miðju næsta ári og fram á mitt ár 2011 eru rúmir 6,6 milljarðar á gjalddaga. Hermann bendir á að lítil ástæða sé til að óttast um framtíð N1. Félagið hafi greitt niður skuldir og eigi 2,5 milljarða á bankareikningi fyrir næstu gjalddaga. „Við erum ekki í neinum vandræðum," segir hann. - jab
Mest lesið Valsstelpa í lyfjabyltingu: „Ég var alltaf svolítið skrýtin blanda“ Atvinnulíf Murdoch-feðgar verði meðal kaupenda TikTok Viðskipti erlent Airpods 40 prósent dýrari hérlendis Neytendur Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Viðskipti innlent Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Viðskipti innlent Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Viðskipti innlent Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Viðskipti innlent Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Samstarf Fleiri fréttir Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Sjá meira