Viðskipti innlent

Afli erlendra skipa við Ísland 52.000 tonn í fyrra

Út er komið ritið Afli erlendra ríkja við Ísland 2008 og heimsafli 2008. Í ritinu kemur meðal annars fram að afli erlendra ríkja við Ísland var tæp 52 þúsund tonn árið 2008 miðað við rúm 90 þúsund tonn 2007. Norðmenn og Færeyingar stunduðu aðallega veiðar hér við land á síðasta ári og uppistaðan í aflanum var loðna.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að heimsaflinn var rúmar 90 milljónir tonna árið 2007 og jókst um 201.000 tonn frá árinu 2006. Kyrrahafið gaf mestan afla og stærsta einstaka fisktegundin var Perúansjósa. Kínverjar veiddu mest allra þjóða árið 2007 en Íslendingar voru í 16. sæti heimslistans.

Ritið má nálgast á heimasíðu Hagstofunnar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×