Nefndir ráðuneyta hafa kostað 300 milljónir Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 27. desember 2009 18:37
Nefndir ráðuneytanna hafa kostað tæpar 300 milljónir króna á árinu, jafnmikið og ríkið ver til að reka Kvennaskólann á næsta ári. Dýrust var nefndin sem kannaði aðbúnað barna í Breiðavík, á Kumbaravogi og Bjargi. Fjöldi nefnda og ráða með margvísleg hlutverk starfa undir hatti ráðuneytanna, þetta eru meðal annars samninganefndir, atvinnumálanefndir, áfrýjunar-, kæru- og úrskurðarnefndir. Þær kosta ríkissjóð allt frá um 30 þúsund krónum og upp úr. Innan við 200 þúsund krónur hafa farið í nefndir hjá utanríkisráðuneytinu á árinu. Annars er nefndakostnaður mjög mismikill á milli ráðuneyta - langmestur hjá þremur, þær hafa kostað röskar 48 milljónir hjá forsætisráðuneytinu á árinu, 62 hjá heilbrigðisráðuneyti og 87,5 hjá ráðuneyti fjármála. Samanlagt hafa nefndir ráðuneytanna kostað 298 milljónir á árinu. Fjórar eru langdýrastar - sú sem kannaði starfsemi vistheimila fyrir börn á árum áður, Icesave samninganefndin - þá Lyfjagreiðslunefnd og vísindasiðanefnd. Eftir að stjórnvöld tilkynntu í júní að skera ætti nefndakostnað niður um helming, hafa mörg ráðuneyti afnumið og eða lækkað greiðslur til nefndarmanna, þannig hætti samgönguráðuneyti til dæmis í sumar að greiða hagsmunaaðilum fyrir nefndasetu. Enn er hins vegar óljóst hvort markmið um helmingsniðurskurð hefur náðst. Og þótt 300 milljónir séu lítið brot af ríkissjóði - má fyrir það fé - samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs - mennta alla 560 nemendur Kvennaskóla Íslands í heilt ár.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira