Lán frá ESB í athugun hjá ráðuneyti og Seðlabankanum 18. desember 2009 08:12
Rætt hefur verið um að sérstök lánafyrirgreiða standi Íslandi til boða af hálfu ESB. Er það mál nú í athugun hjá fjármálaráðuneytinu og Seðlabankanum. Þetta kemur fram í svari Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra við fyrirspurn frá Önnu Margrétar Guðjónsdóttur þingmanns Samfylkingarinnar á Alþingi.Anna Margrét spurði fjármálaráðherra hvort hann hefði látið kanna hvort mögulegt er að fá lán hjá fjármálastofnunum Evrópusambandsins, svo sem Fjárfestingarbanka Evrópu, þegar formlegri stöðu aðildarviðræðuríkis gagnvart sambandinu er náð og ef svo er, hvaða kostir og kjör bjóðast á slíku láni?Einnig var spurt að ef þetta hefur ekki verið kannað, hyggst ráðherra láta gera það?„Evrópski fjárfestingarbankinn (EIB) veitir eingöngu lán til fjárfestingarverkefna og hefur bankinn lánað til fjölmargra verkefna hér á landi á sl. árum. Meðal lántakenda eru Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavíkur og Hitaveita Suðurnesja. Nefna má að lánasamningur að fjárhæð 170 milljónir evra var undirritaður á milli EIB og Orkuveitu Reykjavíkur í nóvember sl. Sérstakt samkomulag er milli EFTA-ríkjanna og EIB um lánaramma fyrir lánveitingar til þeirra," segir í svarinu.„Sá lánarammi var nýlega endurnýjaður og gildir til ársloka 2013 og svara ætlaðar lánveitingar til 3,3 milljarða evra fyrir EFTA-ríkin öll. Ekki hefur komið til álita að leita eftir almennri lánafyrirgreiðslu frá EIB gagnvart ríkissjóði, en lánveitingar bankans eru ýmist verkefnabundnar eða felast í lánalínum til banka eða annarra fjármálastofnana.Evrópusambandið hefur boðið nokkrum ríkjum sem sótt hafa um aðild að sambandinu og öðrum nágrannaríkjum sérstaka lánafyrirgreiðslu sem alla jafna er veitt í tengslum við framkvæmd sérstakra efnahagsáætlana (e. macro-financial assistance). Lánin hafa einkum verið veitt til ríkja í Austur-Evrópu, landa við Miðjarðarhaf og ríkja á Balkanskaga. Rætt hefur verið um að slík lánafyrirgreiðsla standi íslenskum stjórnvöldum til boða og er það mál í athugun í fjármálaráðuneyti og Seðlabanka Íslands."
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira