Hagstofan: Skuldir ríkisins 94,6% af landsframleiðslu 7. desember 2009 09:05
Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.419 milljörðum króna í lok þriðja ársfjórðungs eða sem nam 94,6% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Til samanburðar nam skuld ríkissjóðs 722 milljörðum króna á 3. ársfjórðungi 2008 eða sem svarar 48,9% af landsframleiðslu. Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um fjármál hins opinbera á 3. ársfjórðungi 2009. Í þeim ársfjórðungi var tekjuhalli hins opinbera nokkru minni en á öðrum ársfjórðungi eða 33 milljarðar króna samanborið við 41 milljarð króna. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að sem hlutfall af landsframleiðslu 3. ársfjórðungs var tekjuhallinn 8,4% og sem hlutfall af tekjum hins opinbera 20,4%. Fyrstu níu mánuði ársins var tekjuhallinn rúmlega 100 milljarðar króna eða 6,6% af áætlaðri landsframleiðslu ársins, en á sama tíma 2008 var tekjuafkoman jákvæð um 6 milljarða króna, eða 0,4% af landsframleiðslu. Tekjuhalli ríkissjóðs og almannatrygginga nam 28,5 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2009 samanborið við 8,3 milljarða króna tekjuhalla á sama ársfjórðungi árið áður. Á fyrstu 9 mánuðum ársins var tekjuafkoma þessara aðila neikvæð 85,7 milljarða króna samanborið við rúmlega 16 milljarða króna jákvæða afkomu á sama tímabili 2008. Tekjuafkoma sveitarfélaganna var einnig neikvæð á 3. ársfjórðungi eða um 4,1 milljarð króna sem er svipuð afkoma og á sama tíma 2008. Fyrstu níu mánuði 2009 mældist tekjuhalli sveitarfélaganna um 14,5 milljarða króna samanborið við 10 milljarða króna tekjuhalla á sama tímabili 2008. Hrein peningaleg eign ríkissjóðs, þ.e. peningalegar eignir umfram skuldir, var neikvæð um 441 milljarð króna í lok 3. ársfjórðungs 2009 samanborið við um 24 milljarða króna jákvæða eign á sama ársfjórðungi 2008.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira