Sveitarfélög skuldsett fram úr hófi Þorbjörn Þórðarson skrifar 22. desember 2009 18:30 Frá Álftanesi. Sundlaug bæjarins kostaði skildinginn. MYND/Valgarður
Sveitarfélög söfnuðu skuldum af miklum móð í góðærinu og skuldastaða þeirra er ekki öfundsverð. Sjálfstæði þeirra er stjórnarskrárvarið, en frelsinu fylgir ábyrgð og nú er rekstur sumra sveitarfélaga kominn í ógöngur. Samgönguráðuneytið hefur frá árinu 2001 haft heimildir til að grípa í taumana, en látið hjá líða að gera slíkt. Ískyggileg staða sveitarfélagsins Álftaness, sem er komið í greiðsluþrot, hefur varpað fram spurningum um stöðu annarra sveitarfélaga, en eins og mörg fyrirtæki í landinu virðast sveitarfélögin hafa skuldsett sig fram úr hófi í góðærinu og sum þeirra eru í miklum vandræðum. Stærsta sveitarfélagið, Reykjavíkurborg, mun skulda 311 milljarða króna í lok þessa árs, samkvæmt samstæðureikningi sem fylgir fjárhagsáætlun fyrir árið 2010. Eru skuldir borgarinnar sem hlutfall af eigin fé og skuldum samtals alls sjötíu og fimm prósent. Hjá Reykjanesbæ er þessi upphæð 21 milljarður króna, og skuldir sem hlutfall af eigin fé og skuldum alls sjötíu prósent. Hjá hinu gjaldþrota sveitarfélagi Álftanesi er staðan þannig að eigið fé er neikvætt um 380 milljónir króna og hlutfall skulda 106 prósent. Eins og þessar myndir sýna, svo ekki verður um villst, er staða bæði Reykjavíkurborgar og Reykjanesbæjar langtum betri en Álftaness. Hafnarfjörður er ekki í jafn góðri stöðu, en þar er hlutfall skulda rúmlega 80 prósent. Í samantektinni er stuðst við skuldir samstæðureikninga viðkomandi sveitarfélaga samkvæmt fjárhagsáætlunum þeirra fyrir árið 2009. Í upphæðunum eru því skuldbindingar vegna dótturfélaga, en reynt hefur verið í fortíðinni, með misjöfnum árangri þó, að slá ryki í augu kjósenda með því að vísa einungis til skuldbindinga hluta sveitarfélaga þegar rætt hefur verið um skuldbindingar þeirra, án þess að taka skuldir dótturfélaga með í reikninginn. Ef við tökum sjálfstætt sveitarfélag á landsbyggðinni af handahófi má nefna stöðu Bolungarvíkurkaupsstaðar. Eins og sjá má er staða sveitarfélagsins svipuð og staða Álftaness og eigið fé uppurið. Sjálfstæði sveitarfélaga er tryggt í 78. gr stjórnarskrárinnar og jafnframt eru þeim tryggðir sjálfstæðir tekjustofnar í lögum. Með öðrum orðum, þau bera ábyrgð á sjálfum sér, ráða málefnum sínum sjálf og afskiptum ríkisvaldsins af rekstri þeirra því takmörkuð. Hins vegar er sérstök eftirlitsnefnd verið starfandi á grundvelli reglugerðar frá árinu 2001, en hlutverk hennar er m.a að vara sveitarfélag við ef fjárhagur þess stefnir í óefni og getur jafnvel ráðlagt ráðherra að stöðva greiðslur til sveitarfélags úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Þá má spyrja, hvar hefur þess nefnd hún verið á meðan sveitarfélög eins og Álftanes og Bolungarvík hafa skuldsett sig fram úr hófi? Þau svör fengust í samgönguráðuneytinu að heimildir nefndarinnar væru ekki nægilega skilvirkar og jafnframt að unnið væri að endurskoðun á lagaumhverfi sveitarfélaga.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira