Viðskipti innlent

Bjarni Hrafn tekur við starfi framkvæmdastjóra Terra Nova

Bjarni Hrafn Ingólfsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra ferðaskrifstofunnar Terra Nova. Terra Nova er eitt allra stærsta fyrirtækið í móttöku erlendra ferðamanna til Íslands og hefur verið leiðandi á því sviði í yfir þrjá áratugi.

Í tilkynningu segir að Terra Nova s´de hluti Primera Travel Group fyrirtækjasamsteypunnar sem rekur ferðaskrifstofur á öllum norðurlöndunum, auk flugfélagsins Primera Air, og er þriðja stærsta fyrirtæki á sínu sviði á norðurlöndunum.

Bjarni Hrafn lauk prófi í rekstrarfræði frá Samvinnuháskólanum á Bifröst og M.Sc. í rekstrarhagfræði frá Viðskiptaháskólanum í Árósum í Danmörku. Hann hefur gegnt starfi markaðsstjóra Heimsferða, systurfyrirtækis Terra Nova, undanfarin fimm ár. Bjarni Hrafn er giftur Ingu Þórisdóttur viðskiptafræðingi og á fjögur börn á aldrinum 2 til 24 ára.

"Framundan eru einstaklega spennandi tímar í ferðaþjónustu á Íslandi og fjölmörg tækifæri sem felast í auknum áhuga ferðamanna á Íslandi. Árið 2009 hefur verið metár bæði í umfangi og afkomu Terranova, og hefur sérstaklega verið mikil aukning í viðskiptum nýrra viðskiptavina Terranova. Á næsta ári er fyrirsjáanleg mikil aukning í fjölda ferðamanna sem kemur til Íslands á vegum Terra Nova frá m.a. Þýskalandi, Frakklandi, Spáni, Ítalíu, Bretlandi, Svíþjóð, Kanada, Noregi, Finnlandi, Danmörku og víðar," segir í tilkynningunni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×