Viðskipti innlent

Gengi Century Aluminum hækkar um 3,62 prósent

Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, hækkaði um 3,62 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdi gengi bréfa í Össuri, sem hækkaði um þrjú prósent, og Færeyjabanka, sem fór upp um 0,49 prósent.

Á sama tíma féll gengi bréfa Bakkavarar um 7,52 prósent og Marel Food Systems um 4,11 prósent.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) lækkaði um 0,51 prósent og endaði í 223 stigum. Nýja vísitalan lækkaði um 0,57 prósent og endaði í 581 stigi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×