Viðskipti innlent

Gengi hlutabréfa Bakkavarar lækkaði mest í dag

Bakkavararbræður.
Bakkavararbræður. Mynd/GVA

Gengi hlutabréfa Bakkavarar féll um 6,09 prósent á hlutabréfamarkaði í Kauphöllinni í dag. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Marel Food System sum 0,92 prósent og Færeyjabanka um 0,41 prósent.

Gengi hlutabréfa Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, rauk upp um 7,72 prósent og gengi bréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar hækkaði um 2,74 prósent.

Gamla Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,85 prósent og endaði hún í 269 stigum í lok dags.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×