Össur fer í 3,75 milljarða hlutafjárútboð 2. nóvember 2009 18:23
Stjórn Össurar hf. hefur í dag tekið ákvörðun um að ráðast í takmarkað og lokað útboð á allt að 29.500.000 nýjum hlutum í Össuri á markaðsverði án forkaupsréttar núverandi hluthafa. Miðað við markaðsverð Össurar í dag nemur útboðið um 3,75 milljörðum kr. Í tilkynningu segir að útboðið fer fram á grundvelli söfnunarferlis þar sem boðnir verða að hámarki 29.500.000 hlutir að nafnvirði 1 kr. hver, sem svarar til u.þ.b. 7,0% af útistandandi hlutafé Össurar, að nafnvirði 423.000.000 kr. Útboðsgengið verður ákvarðað að loknu söfnunarferlinu. Miðað við lokgagengið hinn 2. nóvember 2009, sem var DKK 5,2, mun brúttósöluandvirði bréfanna í útboðinu svara til u.þ.b. 153 milljónum danskra kr. (30 milljónir Bandaríkjadala) ef miðað er við að fjárfestar skrifi sig fyrir öllu hlutafénu sem í boði er. Tilgangur útboðsins er að auka fjárhagslegan sveigjanleika félagsins og styrkja grunninn að framtíðarvexti þess. Á undanförnum árum hefur Össur þróast í alþjóðlegt fyrirtæki sem er leiðandi í framleiðslu á stoð- og stuðningsvörum og með sterka markaðshlutdeild á sínum mörkuðum. Félagið á sér sögu um að auka stöðugt verðmæti þeirra vörutegunda sem það framleiðir, bæði með nýsköpun og fyrirtækjakaupum sem styðja við vöxt félagsins. Stjórnendur Össurar telja að langtímahorfur í rekstri félagsins séu mjög góðar. Stöðugt er fylgst með markaðsþróun og fjárfestingartækifærum, en Össur er í góðri stöðu til þess að færa sér í nyt tækifæri sem skapast. Ennfremur hefur Össur hug á að auka flot á bréfum félagsins og bæta þar með seljanleika og verðmyndun bréfanna. Útboðið beinist að tilteknum fagfjárfestum og öðrum dönskum og alþjóðlegum fjárfestum. Útboðið beinist ekki að fjárfestum sem hafa búsetu á Íslandi. Í útboðinu hafa núverandi hluthafar Össurar fallið frá forkaupsrétti sínum skv. heimild í samþykktum félagsins. Sænski bankinn SEB Enskilda er umsjónaraðili útboðsins. Áskriftarumsóknir skulu sendar til umsjónaraðilans og öll kaup skulu eiga sér stað hjá honum. Tilboðssöfnunin hefst þegar í stað. Gert er ráð fyrir að verðákvörðun og úthlutun verði tilkynnt svo fljótt sem unnt er að lokinni tilboðssöfnuninni.
Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira