Bandaríkjamenn kaupa mest Þorbjörn Þórðarson skrifar 2. nóvember 2009 15:25 Mynd/ Valgarður.
Skilanefnd Kaupþings neyddist til þess að óska eftir fresti til að taka endanlega ákvörðun um aðkomu kröfuhafa Kaupþings að Nýja Kaupþingi til 30. nóvember því ekki lá fyrir ársreikningur Nýja Kaupþings fyrir árið 2008 og uppgjör fyrstu níu mánaða þessa árs, að sögn Steinars Þórs Guðgeirssonar, formanns skilanefndar Kaupþings. Samningar milli stjórnvalda og skilanefndarinnar, sem undirritaðir voru 3. september sl. kveða á um að í síðasta lagi 31. október 2009 liggi fyrir ákvörðun skilanefndarinnar um hvort Kaupþing eignist 87 prósent hlutafjár í Nýja Kaupþingi strax eða hvort Nýja Kaupþing verði áfram að fullu í eigu ríkisins með möguleika á því að skilanefndin eignist allt að 90 prósenta hlut í bankanum á síðari stigum. Hinn 30. desember næstkomandi rennur kröfulýsingarfrestur hjá slitastjórn Kaupþings en fyrir þann tíma þurfa kröfuhafar bankans, eins og eigendur skuldabréfa, að lýsa kröfum sínum til að eiga möguleika á að eignast hlut í Nýja Kaupþingi.Bankar og vogunarsjóðir Samkvæmt upplýsingum frá þeim innlendu fyrirtækjum sem fremst hafa staðið í miðlun skuldabréfa föllnu bankanna þriggja eru það aðallega bandarísk fjármálafyrirtæki, bankar og vogunarsjóðir, sem hafa verið að kaupa skuldabréf föllnu bankanna af evrópskum fjármálafyrirtækjum. Að sögn Steinars Þórs Guðgeirssonar eru um 70 - 80 prósent allra krafa á hendur Kaupþingi skuldabréf, sem nú hafa gengið kaupum og sölum. Skuldabréfamiðlarar sem fréttastofa hefur rætt við við segja að dreifing kaupenda skuldabréfanna sé nokkuð jöfn, ekki sé mikið um að einstakir kaupendur safni bréfum en bæði fulltrúar stjórnvalda og forsvarsmenn bankanna höfðu af því áhyggjur að slíkt væri raunin. Ekki er aðeins óvissa um skuldabréfaeigendur því margir stórir lánveitendur Kaupþings hafa selt lánin áfram til annarra fjármálafyrirtækja. Stærstu lánveitendur Kaupþings voru stór evrópsk fjármálafyrirtæki, en stærsti einstaki lánveitandi bankans var Deutsche Bank. Í tilviki Glitnis voru stærstu lánveitendurnir, aðrir en skuldabréfaeigendur, þýsku bankarnir DekaBank, HSH Nordbank breski bankinn Royal Bank of Scotland og japanski bankinn Sumitomo Mitsui. Kröfulýsingarfrestur Glitnis rennur út hinn 26. nóvember næstkomandi.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Sjá meira