Nýja Kaupþing í mál við BGE Þorbjörn Þórðarson. skrifar 2. nóvember 2009 18:51
Nýja Kaupþing hefur stefnt BGE eignarhaldsfélagi, sem var í eigu helstu eigenda og stjórnenda Baugs, vegna hátt í tveggja milljarða króna skuldar. 1830 BGE eignarhaldsfélag var í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, helsta eigenda Baugs, Gunnars Sigurðssonar og Stefáns Hilmarssonar, sem voru helstu stjórnendur Baugs og Skarphéðins Bergs Steinarssonar. Krafa Nýja Kaupþings, 1,8 milljarðar króna, er til komin vegna láns sem bankinn veitti félaginu til hlutabréfakaupa í Baugi Group, en bankinn hafði áður eignast um það bil fimmtungshlut í Baugi þegar fyrirtækið var skráð af markaði. Að sögn Stefáns Hilmarssonar var BGE eignarhaldsfélag búið til í þeim eina tilgangi að kaupa hlutabréfin af bankanum. Einu tryggingarnar fyrir lánum til BGE eignarhaldsfélags voru hlutabréf í Baugi Group, en þau eru verðlaus í dag. Að sögn Stefáns Hilmarssonar voru eigendur félagsins ekki í persónulegri ábyrgð fyrir lánum til þess. Samkvæmt ársreikningi BGE eignarhaldsfélags fyrir árið 2007 var óráðstafað eigið fé félagsins tæplega 900 milljónir króna í árslok. Engar eignir eru í félaginu í dag. Fyrirséð er því að ekkert fáist upp í kröfu á hendur félaginu sem þýðir í raun tæplega tveggja milljarða króna afskrift ríkisbankans Nýja Kaupþings.
Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira