Skorið niður í vegagerð 5. janúar 2009 19:25
Sundabraut, Norðfjarðargöng og brú á Hornfjarðafljót eru meðal verkefna sem stefnir í að verði skorin niður. Þá bíða menn spenntir að sjá hvort eitt margsviknasta kosningaloforð þingmanna, Suðurstrandarvegur, lendi enn undir niðurskurðarhnífnum.Í kerfinu er þessa daga verið að kortleggja tíu milljarða króna til að taka af framkvæmdafé Vegagerðar en Alþingi ákvað við lokaafgreiðslu fjárlaga að skera fimm milljarða af til viðbótar við álíka fjárhæð, sem áður hafði verið ráðgert að taka af markaðri vegaáætlun. Sundabraut verður eitt stærsta verkið sem frestast. Vegur í Gufudalssveit á Vestfjörðum um Teigsskóg fær sömu örlög, að mati heimildarmanna Stöðvar tvö, jafnvel þótt Hæstiréttur fallist á umdeilda vegagerð. Vestfirðingar geta einnig gleymt í bili að láta sig dreyma um Dýrafjarðargöng. Norðaustanlands stefnir í að Dettifossvegur, Raufarhafnarleið og Vopnafjarðarvegur frestist og víst þykir að Norðfjarðargöng verða slegin af. Einnig brúargerð yfir Hornafjarðarfljót, svo það helsta sé nefnt. Suðurstrandarvegur þykir hins vegar líklegur til að sleppa undan hnífnum að þessu sinni þar sem stjórnvöld leitast við að halda í mannaflafrek verkefni nærri Reykjavík. Þrátt fyrir mikinn niðurskurð eru það mörg stórverkefni í gangi, svo sem Óslhíðar - og Héðinsfjarðargöng, að nýbyrjað ár stefnir í að verða það næstmesta í sögu vegagerðar hérlendis, á eftir nýliðnu ári.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira