Hrein erlend staða þjóðarbúsins ekki verið betri í 8 ár 27. nóvember 2009 12:21
Séu gömlu bankarnir undanskildir var hrein erlenda staðan þjóðarbúsins aðeins neikvæð um 524 milljarða kr. í septemberlok. Á þann mælikvarða hefur hrein erlend staða ekki verið jafn góð síðan á 1. fjórðungi ársins 2001.Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um upplýsingar sem Seðlabankinn lagði fram síðdegis í gær um erlenda stöðu þjóðarbúsins. Í Morgunkorninu segir að hafa þurfi í huga að gengi krónu er mun lægra nú en það fór lægst í upphafi aldarinnar, sem hefur áhrif í þá átt að gera stöðuna neikvæðari en ella.Sérstaklega vekur athygli að hrein erlend staða þess bankakerfis sem reis úr rústum hrunsins í fyrra er jákvæð um ríflega 8 milljarða kr. og er það mikill viðsnúningur frá fyrri tíð.Athyglisvert er einnig að Seðlabankinn tekur fram í fréttatilkynningu að endurmat á eign erlendra aðila á skuldabréfum útgefnum á Íslandi hafi leitt í ljós að eignin er töluvert lægri en áður var talið. Bendir það til þess að þrýstingur á krónuna að völdum vaxtagreiðslna til erlendra aðila sé að sama skapi minni. Þótt lesa megi tiltölulega jákvæða niðurstöðu úr ofangreindum tölum ber að hafa í huga að ýmislegt gæti orðið til þess að hrein erlend staða versni nokkuð að nýju. Þar má nefna að erlendar skuldir hins opinbera gætu aukist nokkuð á næstu misserum, og einnig að Icesave-skuldbindingin er hér ekki meðtalin.Varla þarf svo að taka fram að komi til þess að neyðarlögunum sem sett voru í fyrrahaust verði hnekkt mun það hafa umtalsverð áhrif til verri vegar á erlenda skuldastöðu hins opinbera og þar með hreina erlenda stöðu þjóðarbúsins. Hins vegar er gengi krónunnar afar lágt um þessar mundir og má ætla að þegar litið er til lengri tíma komi það til með að hækka. Mun það bæta hreina erlenda stöðu þjóðarbúsins mælt í krónum.
Mest lesið Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Sjá meira