Hlutafjárútboði Marel lokið 27. nóvember 2009 19:35 Marel.
Stjórn Marel Food Systems hf. (Marel) ákvað að taka tilboðum að upphæð 7 milljarðar króna, sem jafngildir 38 milljónum evra, eftir velheppnað hlutafjárútboð á meðal fagfjárfesta sem lauk í dag samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu. Stefnt var að 15% aukningu en tilboð bárust um kaup á alls 111.136.497 nýjum hlutum, sem jafngildir 18% aukningu. Ákvað stjórnin að taka öllum tilboðum, sem komu frá íslenskum lífeyrissjóðum og erlendum og innlendum fagfjárfestum. Gengi í útboðinu var kr. 63 á hlut. Með útboðinu leysir Marel til sín 61,8% af skuldabréfaflokki MARL 06 1 og 17,6% af skuldabréfaflokki MARL 09 1. Stjórn Marel hefur í kjölfar útboðsins samþykkt að auka hlutafé félagsins um 111.136.497 hluti. Hlutafjárhækkunin nemur 18% og verður heildarhlutafé Marel 727.136.497 hlutir eftir aukninguna. Gjalddagi hinna nýju hluta er miðvikudaginn 2. desember næstkomandi. Marel mun óska eftir því að nýju hlutirnir verði teknir til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland eigi síðar en miðvikudaginn 9. desember næstkomandi. Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn höfðu umsjón með útboðinu fyrir hönd Marel en tilgangur útboðsins var að styrkja frekar fjárhagsgrunn Marel, draga úr gengisáhættu og lækka fjármögnunarkostnað.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira