Fyrirtæki bankanna á hlutabréfamarkað 27. nóvember 2009 06:00
Sátt gæti skapast um eignarhald fyrirtækja sem ríkisbankarnir hafa tekið yfir með því að skrá þau á markað og gefa almenningi og fagfjárfestum kost á að kaupa hlutabréf þeirra í stað þess að setja þau í söluferli. Að sama skapi kann skráning fyrirtækja að hleypa nýju lífi í laskaðan hlutabréfamarkað. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, segir viðræður hafa byrjað snemma á þessu ári og hafi bankastjórarnir þrír lýst yfir auknum áhuga á að markaðsvæða fyrirtæki sem hafi komist í þeirra hendur á haustdögum. „Aðstæður eru fyrir hendi og markaðurinn er tilbúinn. Bankarnir verða sjálfir að ákveða hvaða fyrirtæki þeir telja að séu í þeim búningi að vera markaðshæf og hvort þeir telji hagstætt að fara inn á markaðinn," segir Þórður. Áætlanir eru um að fimmtán fyrirtæki verði skráð á markað í Kauphöllinni á næstu misserum. Þórður segir helming þeirra kunna að koma úr ranni eignaumsýslufélaga bankanna. Á meðal fyrirtækja sem bankarnir eiga að öllu leyti eða hluta eru Húsasmiðjan, sextíu prósent í Teymi og fjörutíu prósent í Icelandair Group. Þá ræður Kaupþing yfir 1998, móðurfélagi Haga. Viðmælendur Fréttablaðsins hjá bönkunum segja að skoða verði ýmsa þætti. Hugsanlega megi skrá einhver fyrirtæki á næsta ári. Stór rekstrarfélög með tryggan tekjugrunn, svo sem í smásölu, flugrekstri og fjarskiptum, geti verið góður kostur. „Þetta getur verið mjög hagfelld leið fyrir bankana til að losa um eignahluti þeirra. Það hentar ekki í öllum tilvikum en gæti verið mjög æskileg leið, ef ekki sú besta," segir Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka. - jab
Mest lesið Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Sjá meira