Orkuveitan ætlar að framkvæma fyrir 18 milljarða Jón Hákon Halldórsson skrifar 27. nóvember 2009 16:00 Orkuveita Reykjavíkur.
Orkuveita Reykjavíkur mun standa að framkvæmdum fyrir 18 milljarða króna á næsta ári, samkvæmt fjárhagsáætlun fyrirtækisins. Fjárhagsáæltunin var samþykkt á fundi stjórnar OR í dag. Helstu framkvæmdirnar eru eftirfarandi:Uppbygging nýrrar hitaveitu frá Hellisheiðarvirkjun, sem tekin verður í notkun haustið 2010.Uppbygging 5. áfanga Hellisheiðarvirkjunar, þar sem framleiðsla á 90 MW rafafls hefst síðla árs 2011.Fráveituframkvæmdir á Vesturlandi þar sem ástand skolpmála mun komast í sama horf og á höfuðborgarsvæðinu á næstu misserum. Stjórnendur Orkuveitunnar telja að fyrirtækið verði stærsti einstaki framkvæmdaaðilinn hér á landi á næsta ári. Stórt skref hafi verið stigið í fjármögnun framkvæmdanna þegar skrifað var undir fjármögnunarsamning við Evrópska fjárfestingabankann 20. nóvember síðastliðinn. Samningurinn hljóði upp á 170 milljónir evra, eða sem samsvari 31 milljarði króna. Lánið hafi verið veitt eftir ýtarlega skoðun áhættugreiningardeildar bankans á fjárhag og rekstrarhorfum Orkuveitu Reykjavíkur. Orkuveitan telur að aðhaldsaðgerðir sem starfsfólk fyrirtækisins hafi ráðist í fyrr á þessu ári muni skila um 250 milljóna króna sparnaði á þessu ári, 400 milljóna króna sparnaði á árinu 2010 og hluti aðgerðanna sé til frambúðar. Þá hafi verið gripið til almennrar lækkunar launa sem hafi verið hærri en 300 þúsund krónur á mánuði og hlutfallslega meiri skerðing eftir því sem launin voru hærri.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira