Eftirlitsstofnun EFTA hefur rannsókn á kæru Hafnarfjarðar 27. nóvember 2009 13:55
Eftirlitsstofnun EFTA hefur tekið ákvörðun um að hefja formlega rannsókn á kæru Hafnarfjarðarkaupstaðar til stofnunarinnar vegna opinbers fjárstuðnings Reykjavíkurhafnar (nú Faxaflóahafnir) við rekstur Stáltaks hf.Í tilkynningu segir að atvik málsins eru þau að Hafnarfjarðarkaupstaður sendi kæru til Eftirlitsstofnunar EFTA þar sem því var haldið fram að margskonar viðskipti milli Reykjavíkurhafnar, Dráttarbrauta Reykjavíkur og Stáltaks hf. hafi falið í sér opinberan fjárstuðning til Stáltaks sem væri andstæður ákvæðum EES samningsins um opinberan fjárstuðning.Telur Hafnarfjarðarbær að allt frá því í desember 1999, þegar Dráttarbrautir Reykjavíkur voru settar á stofn af hálfu Reykjavíkurborgar og Stáltaks, hafi Reykjavíkurhöfn beint og óbeint styrkt starfsemi Stáltaks fjárhagslega. Fjárstuðningurinn felist t.a.m. í kaupum á eignum félagsins, en þar er einkum átt við ákvörðun kaupverðs og önnur samningskjör sem hafi falið í sér fríðindi til handa félaginu og ákvörðun óeðlilegra leigukjara; langt undir leigukjörum á markaði.Telur kærandi að með þessum ívilnunum í garð félagsins sem starfar á samkeppnismarkaði sé Reykjavíkurhöfn að raska samkeppnisstöðu þeirra fyrirtækja sem starfa á sama sviði, en jafnframt sé með þessu raskað samkeppnisstöðu þeirra hafna sem bjóða slíka þjónustu, þ.á.m. Hafnarfjarðarhafnar. Með hinum opinbera fjárstuðningi Reykjavíkurhafnar hafi Stáltaki verið gert kleift að bjóða uppá slippþjónustu á lægra verði en samkeppnisaðilarnir.Eins og fyrr segir telur kærandi að aðgerðir Reykjavíkurhafnar feli í sér brot á þeim ákvæðum EES samningsins sem fjalla um opinberan fjárstuðning og gerir þær kröfur að stofnunin grípi til þeirra ráðstafana sem ákvæði samningsins heimila til að stöðva þessa opinberu íhlutun og beiti Reykjavíkurhöfn jafnframt viðurlögum í samræmi við brot sín.Þar sem frumrannsókn málsins lauk með ákvörðun um að hefja formlega rannsókn er ljóst að ESA telur ákveðnar líkur á að reglur EES samningsins hafi verið brotnar, en tekið er fram í niðurlagi ákvörðunarinnar að ESA dragi í efa að aðgerðirnar standist ákvæði 61. gr. EES samningsins og að þær samræmist ekki framkvæmd EES samningsins.Með ákvörðuninni hefst ferli þar sem aðilum er gefinn kostur á að koma fram athugasemdum, en málsmeðferðarreglur ESA gera ráð fyrir að stofnunin ljúki málinu innan 18 mánaða frá birtingu ákvörðunarinnar.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira