Kreppan klippir fimmtung af kaupmætti landsmanna 3. nóvember 2009 11:16
Kreppan mun klippa fimmtung af kaupmætti ráðstöfunartekna landsmanna fram til ársins 2011 ef spár ganga eftir. Reiknað er með að kaupmátturinn verði 21% lægri árið 2011 en hann var árið 2007. Mun kaupmátturinn þá verða hinn sami og hann var árið 2003. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann jókst um ríflega 80% á tímabilinu frá 1994 til 2007. Var samfeldur vöxtur allan tímann að árinu 2001 undanskildu en í niðursveiflunni þá dróst kaupmátturinn saman um 2,9%. Kaupmáttur ráðstöfunartekna dróst hins vegar saman um 0,3% á milli áranna 2007 og 2008 samhliða snarpri lækkun á gengi krónunnar og vaxandi verðbólgu samkvæmt upplýsingum sem Hagstofan birti í morgun. Lækkun kaupmáttar ráðstöfunartekna á mann á milli áranna 2007 og 2008 var upphafið af einni mestu lækkun ráðstöfunartekna sem hér á landi hefur átt sér stað. Samkvæmt spá fjármálaráðuneytisins sem birt var núna í byrjun október mun kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann dragast saman um 10,4% í ár og um 11,4% á næsta ári. Kaupmátturinn mun síðan ná botni í núverandi kreppu á árinu 2011 en þá mun hann vera rétt ríflega það sem hann var á árinu 2003. Kreppan mun þá hafa klippt um fimmtung af kaupmættinum en samkvæmt spánni mun kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann vera 21% lægri árið 2011 en hann var árið 2007. Þrátt fyrir lækkunina mun kaupmáttur ráðstöfunartekna enn vera um 42% hærri 2011 en hann var 1994 og þannig mun ríflega helmingurinn af þeirri 80% kaupmáttaraukningu sem átti sér stað á tímabilinu frá 1994 til 2007 standa eftir þegar botni kreppunnar verður náð samkvæmt spánni. Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann mun þá verða tæplega 9% hærri en hann var þegar síðasta uppsveifla í efnahagslífinu hófst árið 2001/2002.
Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira